Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1970, Page 74

Eimreiðin - 01.05.1970, Page 74
138 EIMREIÐIN hvað, og muntu illt af hljóta. Hefur þú að vísu mjög á oss leikið nær sem við fáum þess hefnt. Og gjarnan vildi ég, að þú færir ekki heill af þessu þingi. Grettir: Gerið greinilegt fyrir mér, hvað ykkur býr í skapi. (Hinir ræðast við hljóðlega.) Stoðar nú lítt að stinga saman nefjum. Verður ei ómerkt það, er Hafur hefir fyrir mælt, þótt mjög sé nú af honum dreginn sköruleikinn. Eigið þið og miklu meira á hættu en ég, hvort þið haldið grið yðar eða látið sæmd yðar og þinghelgi. Hjalti: Það skal aldrei verða, að við gjörumst griðníðingar, þótt Grettir eigi í hlut, og hér hafi orðið hyggindamunur. Vil ég eigi, að menn hafi það til eftirdæmis, að við göngum á þennan grið, sem við höfum sjálfir sett og selt. Skal Grettir fara liðugur þangað, sem hann vill héðan af þinginu. En þá eru úti þessi tryggðamál, og göngum nú og sjáum á leik- ina. Þeir fara. Þorbjörn: (Við sjálfan sig). Hart er við að búa, að láta Gretti komast frjálsan héðan af þing- inu, er hann hefir nú gengið í hendur vorar. Hjalta mun þykja sér óvant, þar sem hann hefir aflátið sinn hlut eyjar- innar til mín. Þó mun hann ráða verða nú um sinn. Þuríður kerling: (Kemur inn.) Hvaða ráðagerðir hafið þið hér í dag höfðingjar. Eða hvort er sem mér sýnist, að Grettir hafi náð sætt af ykk- ur? Þar sem hann gengur nú að leik með héraðsmönnum og er þó svo harðleikinn, að viðliggur meiðslum og bein- brotum. Þorbjörn: Skammæ skyldi sú sætt vera, ef ég má ráða, þótt við verði að búa nú um sinn. En hafa vildi ég ráð þín fóstra og tilstuðlan nokkra, ef takast mætti að vinna á Gretti. Þuríður kerling: Nú þykir koma að því, sem mælt er, að margur fer í geitahús ullar að biðja. Eða hvað mundi ég síður en þykjast fyrir héraðshöfðingj- ingjum, en vera þó til einskis fær þar eð ég rís vart úr rekkju. Þorbjörn: Það ætla ég, að þú kunnir nokkuð fyrir þér, það er aðrir fái ekki við séð. Hef ég nú komizt yfir Drangey að mestu fái ég yfirstigið Gretti. Hefur þú mér jafnan heilráð verið, og vil ég víst, að þú leggir hér nokkuð til. Þuríður kerling: Ef ég á eitt- hvað til að leggja, vil ég ein ráða aðgerðum. Mun þá sýnt verða hversu heilladrjúgir þeir Grettir verða hér eftir í Drang- ey. Væntir mig að þeim fari heldur sígandi giftan. Vil ég, að þú færir hingað rótartré

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.