Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1970, Side 77

Eimreiðin - 01.05.1970, Side 77
GRETTIR ÁSMUNDSSON 141 sexn að leiða þig í ógöngur þessar með mér. lllugi: Það met ég mest sæmd mína að veita þér svo góða fylgd sem ég má. En ekki virð- ist mér svo óvænlegt um vorn hag. Er þess að minnast að leysa ber þig á næsta Alþingi undan skógangs sökinni. Grettir: Ekki mun þetta þann veg ráðast og má enginn sköp- um renna. En þó vil ég, að við séum varir um oss, því ætla mun Þorbjörn, að þetta skuli ekki eitt saman fara. Vil ég Glaumur, að þú gætir stigans hvern dag, en dragir upp um nætur. Glaumur: Það er þó helzt til, að nú sé mannavon eða mun nokkrum svo mikill hugur á að ná lífi þínu að þeir vilji til vinna að drepa sig, því nú er veður langt um ófært. Grettir: Ekki skaltu þar um véla að hlýða skipun minni, ella sæta afarkostum. Glaumur: Lokið ætla ég nú garp- skap þínum hinum mesta, er þér þykir sem allt muni ykkur að bana verða. Grettir: Þú munt þig ver bera en hver okkar til hvers sem taka þarf, en geyma skaltu stigans vandlega eins og ég hef fyrir mælt, ef þú vilt lífi halda. (Grettir og Illugi fara inn í skálann.) Glaumur: (Við sjálfan sig.) Und- arlega er þeim nú farið frænd- um, einkum Gretti. Er sem falla muni fjör úr þeim þótt ekkert beri til. Hirði égaldrei, þótt hann yrði svo illa haldinn af sári sínu, sem hann spáir og ekki hirði ég stigann upp að draga í slíku veðri sem þessu. Tjaldið. Annað atriði. (Glaumur sefur fjarst sviðinu. Þorbjörn öngull og menn hans koma inn.) Þorbjörn: (Stjakar við Glaumi.) Vakna Jdú mannfýla. Er sá sannarlega ekki vel staddur, sem á líf sitt undir þínum trúnaði, þar sem þú sefur hér og svíkst um að gæta stigans. Glaumur: Nú látið þið sem oft- ar, er sem ykkur þyki ofmikið minn hlut, þótt ég liggi hér í kuldanum. Þorbjörn: Ertu svo vitlaus, að þú skynjir eigi, að óvinir ykkar eru hér komnir og munu drepa ykkur. Glaumur: (Æpir.) Æ, æ, hjálp, hjálp. Þorbjörn: Ger annað hvort að þegja eða ég drep þig þegar í stað. Eru þeir í skála bræður, eða hví eru þeir eigi hér á ferli? Glaumur: Eigi ber gott til þess.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.