Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 22

Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 22
KENNSLA HEIMA OG j SKÓLA alþýðu gagnvart framfarasinnaðri skólavæðingu (Skjöl nr. 64, 18, 445, 561, sbr. Edvardsen 1992:63-83,104-113). Með þeim fræðsluformum sem tíðkuðust á þessu tímabili í sveitum landsins, farskóla og eftirlitskennslu, var óhjákvæmilega stofnað til náins sambýlis „heimila og skóla" þar sem kennarar bjuggu og hrærðust meðal nemenda og heimilisfólks. Þrátt fyrir oft afar fátæklegar ytri aðstæður eru þess ýmis dæmi að farskólinn hafi reynst nemendum gjöfull náms- og reynslutími. Hitt er ljóst að hin þröngu kjör ollu oft togstreitu í samskiptum kennara og fræðslunefnda sem gættu einkum hags- muna foreldra og sveitarfélags. Ein af ótilætluðum en fyrirsjáanlegum afleiðingum lagasetningarinnar 1907 var sú að fljótlega dró úr skólasókn yngri barna (undir tíu ára aldri) í hlutfalli við eldri börn, miðað við það sem viðgengist hafði um aldamótin. Að sama skapi var fræðsla hinna fyrrnefndu í vaxandi mæli háð þeim sérstöku úrræðum sem heimilin gátu boðið upp á. Þessi þróun kann að hafa magnað hinar mjög svo tíðu umkvartanir skólayfirvalda og kennara þess efnis að heimilin stæðu ekki við kröfur laganna um nauðsynlega undirbúningskennslu yngri barna í lestri og skrift. Ýmsir höfðu þennan vanda til marks um að heimafræðslunni hefði hnignað frá fyrri tíð. Má vel vera að efling skólahalds í kjölfar lagasetningarinnar hafi slævt ábyrgðarkennd sumra foreldra að þessu leyti (Skólablaðið 1913 (7,9):139, Skjöl nr. 24, 40,197). Hitt er þó fullt eins sennilegt að skólamönnum og kennurum hafi orðið starsýnna á „van- rækslu" heimilanna vegna þess að þeir hneigðust með tímanum til að gera strang- ari kröfur um kunnáttu og færni barnanna við upphaf skólagöngu (sbr. Skólablaðið 1912 (6,10):145—147). I uppeldisfræðilegri orðræðu þessa tímabils birtist lestrarkennsla yngri barna sem höfuðvandamál. Til lengdar reyndist þýðingarlaust að skella skuldinni ein- hliða á heimilin eða treysta á einkaúrræði foreldra sem máttu sín margir lítils sökum efnaleysis og menntunarskorts. í mörgum kaupstöðum og kauptúnum tóku því sveitarstjórnir og skólanefndir að hafa forgöngu eða milligöngu um hálfopinber úrræði í þessu efni. Þannig fetuðu menn sig áfram að því marki sem sett var með lögunum 1926, bæði hvað varðar lækkun á prófaldri og heimild til að færa niður skólaskyldualdurinn. Eru nokkur dæmi þess að staðaryfirvöld hafi ekki beðið boða laganna til þess að opna skólana fyrir yngri börnum. A þessu tímabili mótaðist öll orðræða skólamanna af þeirri framtíðarsýn að aukin og almenn skólavæðing væri forsenda fyrir verulegum úrbótum á skyldu- fræðslu barna og þar með allri alþýðumenntun í landinu. Heimildir eru sagnafáar um viðhorf óbreyttra foreldra til úrlausnarefnisins; en geta má sér þess til að margir þeirra, einkum til sveita, hafi verið mótfallnir þessari skólavæðingarstefnu og hefðu heldur kosið lausnir á vanda barnafræðslunnar sem miðuðust við betrumbætur innan ramma heimafræðslunnar. En fyrir gildi slíkra lausna var satt að segja örðugt að færa sannfærandi rök á þessum tíma sem var rétt að sigla inn í símaöld og þekkti enga þráðlausa samskiptatækni. Öðru máli mætti gegna á þeirri öld alnets og veraldarvefs sem nú er runnin upp. 20 á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.