Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Side 119

Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Side 119
RAGNHILDUR BJARNADÓTTIR í umfjöllun um kynferði og jafnrétti koma upp hugmyndafræðileg vandamál og margs konar mótsagnir sem óhjákvæmilegt er að skoða vel og takast á við ef umræðan á ekki að verða yfirborðsleg. Stundum er lögð áhersla á að kynjamunur sé eðlilegur og æskilegur, hvort sem hann er af menningarlegum eða líffræðilegum toga. Þá er m.a. rætt um sérstaka kvenlega eiginleika og karlmannlega eiginleika, jafnvel sérstakt „stúlknauppeldi" og „drengjauppeldi" (pigepædagogik, drengepæda- gogik, sjá m.a. Reisby 1995). Þessi áhersla er varhugaverð. Kynjamunur er reyndar ' fyrir hendi og er bæði af líffræðilegum og menningarlegum / félagslegum toga. En stúlkur og drengir eru einstaklingar með mjög margbreytilega eiginleika og hætt er við að ólíkar uppeldisáherslur vinni gegn persónulegum þroska og ýti undir að stöðluð viðmið festist í sessi. I uppeldi verður líka að leggja áherslu á að drengir og stúlkur læri jafnt mannlegar dyggðir eins og tillitssemi, umhyggjusemi, einlægni og sjálfstæði í skoðunum, og að þetta séu sammannlegir eiginleikar. Hvorki stúlkur né drengir, karlar né konur, hafa einkarétt á ákveðnum mannlegum eiginleikum, áhugamálum eða viðfangsefnum. Og það skiptir máli að börn þrói með sér fordómalaus viðhorf til þess hvers þau sjálf eru megnug og hvað þeim leyfist, en verði ekki háð löngu úreltum höftum og hugmyndum um það hvað felst í því að vera kvenkyns eða karlkyns. í tveimur íslenskum skólum hafa verið unnin skipulögð jafnréttisverkefni þar sem markmiðið var að stuðla að sveigjanlegum viðhorfum nemenda til launaðra og ólaunaðra starfa og jafnframt til eigin getu. Annað var eitt af íslensku Nord-Lilia verkefnunum og var unnið í Grandaskóla (sjá Arnesen 1995:58), en hitt var unnið í Myllubakkaskóla á árunum 1991-1992 (Guðný Guðbjörnsdóttir 1994b:29-52). Sam- kvæmt þeim rannsóknum og fræðilegu efni, sem hér hefur ítrekað verið vitnað í (Maccoby 1988, Serbin o.fl. 1993), eru slík verkefni mjög þörf þar sem þau eru til þess fallin að efla skilning nemenda og gagnrýnið viðhorf til kynbundinna við- miðana og væntinga sem hugsanlega gætu haft áhrif á þeirra eigin persónulega þroska og stefnumótun í lífinu. LOKAORÐ Á árunum 1995 og 1996 hafa kennaranemar ekki gert athugun á samskiptum í skólastofunni eins og þeir gerðu á árunum 1992-1994. Engu að síður hefur verið lögð áhersla á að fjalla um tengsl kynferðisvitundar, jafnréttis og skólastarfs á nám- skeiðinu í þróunarsálarfræði og tvö af tíu ritgerðarefnum á námskeiðinu tengjast þessu efni. Greinilegt er að áhugi á kynferði og jafnrétti er töluverður þegar efnið er á dagskrá, en hætt er við að þetta sjónarhorn gleymist að mestu seinna í náminu ef tekið er mið af upplýsingum frá nemum á þriðja ári (sjá bls. 115). Athyglisvert var að einungis lítill hluti nemanna gerði jafnréttismál að meginþræði í viðfangsefnum sem þeir unnu með síðar í kennaranáminu. Engu að síður gafst þeim þar oft svig- rúm til að velja um áherslur í verkefnum. Það er líka umhugsunarvert og í raun áhyggjuefni að flestir kennaranemar á þriðja ári, eða 70% þeirra, telja að umfjöllun um kynferði og jafnrétti sé afar lítil utan námskeiðsins í þróunarsálarfræði. Kenn- aranemar bentu auk þess á að í ljósi þess að 80-90% kennaranema eru konur, sé 117
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.