Hlín - 01.01.1946, Qupperneq 59
Hlín
57
kynst dauðanum hefur líka sína miklu þýðingu. Þetta
gefur börnunum aðra aðstöðu í lífinu. — Þau verða oft
siðferðilega sterkari og festumeiri. — Að vera fátækur,
hafa lítið handa á milli, þarf ekki að gera neinn ógæfu-
saman eða heimilislífið leiðinlegt. Það er enginn verri
fyrir það, þó liann verði að láta á inóti sjer. Þvert á móti.
Of mikil eyðsla, of mikið óhóf göfgar engan mann.
En svo eru það þessar konur, sem skifta áhugamálum
sínum milli heimilanna og hinna launuðu embætta. Þær,
sem vinna fyrir sjer utan heimilis, en þurfa þess ekki. —
Jeg vil ekki neita því, að það eru til konur, sem eru svo
duglegar, að þær geta gert þetta svo vel sje. — En slíkar
húsmæður heyra undantekningunum til. — Það eru svo
fáir, sem kunna tveimur herrum að þjóna.
Vegna hinnar miklu baráttu kvenrjettindakonunnar
hafa nú allar konur greiðan gang bæði að mentun og at-
vinnu. — Á síðari árum hefur konan aflað sjer sjerment-
unar í ýmsum greinum. Fjöldi af þessum konum hafa tvö
embætti. Embætti í sjergrein sinni og heimili sem gift
eiginkona. — Ef hún er móðir, verður hún að yfirgefa
heimilið og barnið fleiri tíma á dag. Það eru sagnir um,
það, að konur fái börn sín á vinnustöðvarnar til að gefa
þeim brjóst. — Getur móðirin útilokað alla hræðslu,
kvíða og umhyggju fyrir börnurn sínum, meðan hún er
við störf utan heimilis? — Getur hún t. d. tekið að sjer
kenslu á annara manna börnum, meðan hennar eigið
barn liggur veikt heima? — Getur hún stilt sig um að
hugsa: „Bara að Anna muni nú eftir að skifta á litlu stúlk-
unni. — Skyldi hún muna að líta eftir litla drengnum, að
liann hlaupi ekki út á götuna eða steypi sjer út um glugg-
ann.“ — Það eru þúsund áhyggjur, sem hvarfla í hug móð-
urinnar við starf hennar utan heimilis, allra helst ef smá-
börn eiga í hlut. — Maðurinn á miklu hægra með að úti-
loka allar áhyggjur um heimilið og ganga upp í vinnu
sinni utan heimilis en móðirin. — Það er mjög vafasamt,
að góð móðir geti nokkra stund slitið hugann frá heimili