Hlín - 01.01.1946, Page 125
Hlin
123
konu Sigurðar Sigurðssonar ,1 Fjarðarhorni i Hrúlafirði, um 1800. —
Hún þóui vcl að sjer til munns og handa, eftir [)ví sem þá gerðist um
konur. Og það sagði móðir mín mjer, að synir hennar licfðti þakkað
henni meir en föður sínum, að þeir fengu mciri mentun en alment var
um bændasonu á þeirri tíð (um 1800). Sjálf kendi hún sonurn sínum að
skrifa, og lærðu þeir að draga til stafs á hrosskjálka tneð sótbleki og
fjaðrapenna. — l'ó var faðir þeirra talsverður bókmentamgður og skrif-
aði upp bækur, og er víst eitlhvað af handritum hans á Landsbóka-
safninu.
Synir Katrínar og Sigurðar vóru: Ólafur piófastur í Flatey (afi frú
Teódóru Thóroddsen), Þorvaldur í Hrappsey (afi Þorvalds Thóroddsen
og þeirra bræðra) og Matthías á Kjörseyri í Hrútafirði.
Mikið af bókinni er teiknað á bakhlið á gömlum sendihrjefum. Margir
uppdrættirnir eru jafnsmátt strikaðir og miðinn, sem jcg legg hjer með
að gamni til þess að sýna, livcrnig verkið er. — Bókin er öll teiknuð
með svörtu hleki, fylt út hvert spor, og alls engin litamerki. Mest finst
mjer um, hve hún er fínt og jafnt rúðustrikuð, það held jeg fáir ljekju
eftir nú á dögum.
Læt jeg svo úttalað um þessa uppdráttahók langöinmu minnar og
óska aðeins að hún mætti að sem mestu gagni koma. (Margt er nú prent-
að úr bók þessari í Uppdráttarmöppu þeirri, sem auglýst er á káp-
unni. — Ritstj.)
Kvcnfjelagið „Rrautin", Bolungarvík: — Fjelagið kcypti ljóslækninga-
tæki og gaf Hólshreppi — kosluðu [)au 2569 kr.
Kvenfjelagið „Brynja“ á Flatcyri: — Kvenfjelagið aflaði fjár til kaupa
á ýmsum munum til hins nýja sjúkrahúss, sem verið er að reisa þar á
staðnum.
Kvenfjelagið „Ársól1, Súgandafirði: — Fjelagið gaf 1000 kr. til bygg-
ingar gufubaðstofu á Suðureyri, lagði í hyggingu veitingaskála við Botns-
rjett 3540 kr. og hygst að byggja annan við Árhúsarjett á þessu sumri.
Kvenfjelagið „Framsókn*, Bíldudal: — Fjelagið efndi til handavinnu-
sýningar. Stofnaði skógræktatfjelag og gaf 500 kr. til starfseminnar.
. .Frá sambandi austfirskra kvenna: — María Jóhannsdóttir frá Fáskrúðs-
firði vann 4 mánuði hjá Sambandinu veturinn 1945—6. — Sambands-
fundur samþykti að greiða '/s af kaupi hjálparstúlku, cf fengist, úr
sambandssjóði.
Úr brjefi frá Ingibjörgu Olafsson í London: — Jeg er nú á góðum
batavegi. Það sem að mjcr gengur er mest of liár blóðþrýslingur og
þreyta, þesskonar þjáir margt eldra fólk eftir liina miklu áreynslu á
stríðsárunum, samfara næringarlitlum mat, scm öll þjóðin átti við að
búa. — En þetta batnar nú smámsaman, vona jeg.
Þegar Þjóðverjar settust að á frönsku ströndinni, beint á móti okkur,
bjuggust allir við að þeir myndu landa hjer í Rottingdean og Brigliton,