Hlín - 01.01.1946, Síða 122
120
Hlín
vistarskóla, og svo kemur lireppsliúsið á eftir, og þ;i getum við nú ekki
lengur borið við húsleysi.
I’ú talar um góðu tíðina á Norðurlandi á s. 1. sumri. En hjer á
Suðurlandi muna elstu menn tæplega slíka hrakatíð, nú bráðum árið
út. I'að komu fáir bjartir dagar á blessuðu sumrinu síðastliðna, enda
varð heyskapurinn ltreinasta hörmung. Það er bara matargjöfin, sem
bjargar blessuðum skepnunum frá hor og hungri. — Það þarf mikinn
dugnað f bændur og búalið að halda hústofninum við í svona árferði
með því kaupgjaldi, og verðlagi, sem er á öllum hlutum. — En svo
þykja nú afurðirnar dýrar líka og mikið fer í milliliðina.
Jæja, jeg ætlaði nú ekki að fara að skrifa hjer neina raunarollu um
búskapinn á Suðurlandi. — Jeg geri ráð fyrir, að þú lílir þjer nær, því
líklcga er víða pottur brotinn í þessum efnum, en blessuð tfðin skapar
oft leikinn við búskapinn og sveitastörfin. Þ. A.
Frá Kvenfjelaginu í Hnísey: — Hjer var haldið bæði prjónavjela-
námsskeið og saumanámsskeið undanfarið. Voru prjónaðar 280 flíkur
og saumaðar 150.
Frá Flensborgarskólanum á Hafnarfirði: — Hjer í skólanum er stúlk-
um kend matreiðsla. — Kennari var s. 1. vetur frú Dagbjört Jóndóttir,
sent var forstöðukona Laugalandsskólans. — Það er líka kend handa-
vinna, drengjum smíðar, bókhand og útskurður og stúlkum ýins handa-
vinna.
Matthildur í Garði skrifar haustið 1945: — Þá er þctta blessað sumar
að verða liðið, — Mikið hefur tíðin vcrið yndislcg, og vel spruttu jurt-
irnar. — Stúlkurnar, sem vóru hjá mjer í sumar við nám, vóru alvcg
prýðilegar, bæði myndarlegar, duglegar og skemtilegar. — Þó búið sje
að lita bandið, er fjarska mikið verk eftir við það að hespa það alt,
og ganga frá því sem söluvarning.
Ur Rangárvallasýslu er skrifað: — Við verðum að reyna að lialda í
alt það góða gamla, því má ekki burtkasta fyrir erlent tildur og prjál.
Við megum ekki gleyma, að við búurn við hið ysta liaf, þcgar við
veljum okkur klæðnað, og þá á að verða fyrir valinu íslenska ullin
góða. P.
Úr Skarðshreppi í Dalasýslu er skrifað: — Kvenfjelagið okkar heitir
„Ardís". Það er aðeins þriggja ára gamalt. Fjelagar 15, árgjaldið 5,00. —
Við höfum ekki aðstöðu til að halda skemtanir, getum þessvegna ekki
aflað fjelaginu tekna með því móti. Það virðist heldur ekki vera neinn
hörgull á skemtunum í sveitinni yfir sumartímann. — Við unnum
sölumuni úr ull í fyrravetur, ágóðinn varð hátt á fimta hundrað krónur.
Okkur fanst árangurinn svo góður, að við hugsum til að gera þetta
oftar. — Saumanámsskeið var haldið í vetur með góðuin árangri. Fje-