Hlín - 01.01.1946, Síða 69
Hlín
67
ans, þeim tekst það yfirleitt svo vel, að fáir mundu sjá, að
börn liafi þar verið að verki. — Kennarinn sjer þeim fyrir
öllu bókbandsefni og áhöldum. Börnin borga verkefnið
í lok skólaársins, sem venjulega er eitthvað neðan við 10
kr. fyrir hvert barn. — Þetta starf er vinsælt af öllum.
Yfirleitt er lieilsa barna hjer í góðu lagi .— Öræfingar
losna líka við marga umferðasjúkdóma vegna fjarlægðar
frá öðrum bygðum. Læknar telja loftslag hjerna vera holt.
Hjer hefur aldrei orðið vart við berklaveiki.
Fjelagslíf er hjer í góðu lagi, þar ber ungmennafjelagið
hæst. — Það heldur fundi því nær mánaðarlega, utan
sláttar. — Þá ræða fjelagar áhugamál sín og skemta sjer að
lokum við söng og dans. — Fjelagið hefur gefið út blað í
mörg ár: „Fjelagsvininn“. — Blaðið er fjelaginu til sóma,
það er lesið upp á ungmennafjelagsfundum og flytur þá
venjulega hver sína sögu eða kvæði. Þetta er hin besta
skemtun. — Unga fólkið hlakkar mikið til þessara funda.
— í fjelagið ritast nálega öll 12 ára börn. Fáir ganga úr
því aftur nema heimilisbundnar konur. — En sumir, sem
liafa flutt úr sveitinni, hafa gerst æfifjelagar öðrum til
mikillar ánægju.
Það eru víst fáar sveitir á íslandi, sem hafa eins mörgu
ungu fólki á að skipa eins og Öræfin. — Hjer eru svo sterk
tengsl milli foreldra og barna, að börnin yfirgefa ekki
heimili sitt, nema það sje bjarglegt eftir. — Ungu stúlk-
urnar eru að reyna að sjá svo um, að mamma þeirra hafi
altaf eina stúlku heima og sömu sögu má segja af piltun-
um. — En jjar sem aðeins er einn drengur, eða ein stúlka,
þar er úr vöndu að ráða, því flestum er útþráin í blóð
borin. Fólkið vill sjá sem mest af landinu og leita sjer fjár
eða frama. — Foreldrar vilja líka sjaldan marka börnum
sínum svo „þröngan bás“ að þau hafi enga stund frjálsa
út fyrir sveitina, „því heimskt er heimaalið barn“. — Þess-
um unglingum gefst oftast eitthvert tækifæri til skemti-
ferða eða að sækja námskeið, sem hafa orðið unglingum
að miklum notum.
5*