Hlín - 01.01.1954, Side 83
Hlín
81
þess, lieldur fyrst og fremst að vekja áhuga hjá fólki fyrir
smekklegum og vönduðum heimilisiðnaðarvörum, flokka
þær eftir gæðum og samræma verð þeirra.
„íslenskur heimilisiðnaður" hefur með höndum sölu á
ýmiskonar heimaunnum vörum: Tekur á móti vörum og
annast sölu og dreifingu þeirra. — Eins og nú er háttað
tökum við vörur þær, sem berast okkur og eru söluhæfar,
með greiðslufresti, en takmark fyrirtækisins er stað-
greiðsla, sem er í öllu hagkvæmari, bæði fyrir seljendur
og fyrirtækið sjálft. — Verður það fyrirkomulag tekið upp
strax og nægilegt fjármagn er fyrir hendi.
Heimilisiðnaðurinn var mikill hjer fyr á öldum, enda
vjela-vinna Jrá ekki fyrir hendi. — Þá var vinnan fjöl-
breytt: Allskonar útskurður úr trje, málmi og horni. —
En okkar ævaforni, dýrmæti ullariðnaður skipaði þó jafn-
an öndvegið. — Ullin hefur, eins og allir vita, verið aðal-
efnið í klæðnaði okkar fyr á tímum, og hefur verið sá
hitagjafi, sem best hjelt lífinu í þjóðinni í köldum og
saggafullum húsakynnum, sem almenningur áttí þá við
að búa. —■ Þá var ullin gernýtt: Hún var notuð í listiðnað
og saUm, allan algengan ullariðnað og Jrað gi'ófasta í
ábreiður og skjólklæði (t. d. hríðarúlpur). — Það sama
Jrurfum við að gera nú: Aðskilja ullina vel, nota Jrað fín-
asta í allskonar listiðnað: ofna dúka og refla, prjónuð sjöl
og skotthúfur, hyrnur, vettlinga, sokka, nærföt, peysur,
vesti o. fl., en grófari ullina í teppi, leista o. s. frv. — Fvrir
þetta alt er góður markaður hjá okkur, aðeins að það sje
heppilega unnið og verði stilt í hóf. — Fyrirtækið „íslensk-
ur heimilisiðnaður“ leggur sjerstaka áherslu á hagnýtingu
ullarinnar: Að skapa úr henni verðmæti til sölu innan-
lands og utan.
Á síðari árum hefur það verið mjög erfitt að fá góða
tóskaparull. — Ullin er nú orðið víðast hvar látin í vjelar
til þvotta. En ]>að er ekki liægt að taka ofan af ull, sem
þvegin er í vjelum, því hún Jrvælist svo mikið við Jrvott-
inn. — Síðastliðið ár tókst mjer að fá keypt nokkuð á ann-
6