Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 16
Merkiskonur.
Þorb jörg Sveinsdóttir,
ljósmóðir.
Úr minningarriti, er Hið íslenska kvenf jelag gaf út 1908.
Til föðursystur minnar:
Heita eining lniga og máls,
lijarta gulls og vilji stáls,
ljósið trúar, ljósið vona,
lífs þíns minning yfir brenni.
I>ú, sem unnir ei til hálfs
auðnii landsins dætra og sona.
Blómsveig kærleiks bjart um enni
berðu hátt. Nú ertu frjáls.
Dygð og trygð þilt dæmi kennil
Dána'. l>ú varst íslensk konal
E. fí.
Því er miður, að of löng bið hefur orðið á því að geta
að einhverju helstu æfiatriða þessarar merku konu. — En
ekki stafar þó sú bið af því, að Kvenfjelagið geymi ekki
í heiðri og þakklæti minningu liðins leiðtoga og for-
seta síns.
Það vill oft verða, og er ekki nýtt, þegar yfirburða for-
kólfur fellur frá ungu fyrirtæki skamt komnu á þroska-
leið, að þeim, sem eftir koma, tefjist hendur til fram-
kvæmda, meðan þeir eru að sækja í sig veðrið að verða
ieiðtogar sjálfir, sem áður fylgdu einráðum fyrirrennara.
Þorbjörg Sveinsdóttir, ljósmóðir, var fædd að Sandfelli
í Öræfum árið 1828. — Foreldrar hennar voru Sveinn
prestur Benediktsson, prestssonur frá Hraungerði í Flóa,
fæddur 1792, og Kristín Jónsdóttir frá Árvelli á Kjalar-
nesi, fædd 1794. — Síra Sveinn vígðist til Sandfells árið