Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 83
Heimilisiðnaður.
ÁVARP
flutt á Selfossi 30. maí 1958 við opnun sýningar S. S. K.
Halldóra Bjamadóttir.
Þær eru að segja mjer það konurnar hjerna, að Sam-
band sunnlenskra kvenna sje 30 ára, og að jeg hafi stofn-
að það hjer á Selfossi. — Þetta er sjálfsagt rjett hjá þeim
góðu konum, þó jeg væri búin að gleyma því. — Það er
skrítin tilviljun, að það skyldi hittast svo á, að jeg er hjer
á ferð einmitt um þetta leyti.
Það er margs að minnast frá samskiftum við konur hjer
í Árnes- og Rangárvallasýslum. — Þegar jeg fluttist hing-
að suður 1922, til þess að taka að mjer kenslu í handa-
vinnu í Kennaraskólanum, fór jeg strax að leita fyrir
mjer um samvinnu við kvenfjelög lijer austanfjalls, sem
þá voru á víð og dreif, svo sem víðast annars staðar í
landinu.
Jeg kom oft á fundi hjer í Tryggvaskála, bæði í boði
kvenna ,og stundum boðaði jeg til fundanna. — Það var
æfinlega ánægjulegt að koma á fundi með sunnlensku
konunum, og oft komu þær með sýningarmuni, og það
var ekki neitt smávegis: Stórir strangar af fataefnum og
ábreiðuefnum m. a. — Maður varð alveg undrandi.
Þátttaka þessara hjeraða í Landssýningunni 1930 var
Ijómandi góð ,og ágætir fulltrúar fylgdu, tveir úr hverri
sýslu, eins og ákveðið var, karl og kona.
Svo var farið að tala um stofnun Sambands fyrir þessi
mörgu fjelög innan Árnes-, Rangárvalla- og Skaftafells-
6