Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 46
44
Hlin
Nú lií'ir þú hjá mjer í börnunum okkar. — Þú færðir
mjer birtu og yl, þá dimt var í lofti og stormar lífsins
næddu um mig. — Þá komstu og gafst mjer trúna á lífið.
Með ást þinni og fögrum hugsjónum vaktir þú það besta
í sál minni, einmitt þegar mjer reið mest á, í þann mund,
er jeg hvergi gat eygt ljós fyrir stafni, en horfði út í sort-
ann. — Þú bygðir heimilið okkar á bjargi kærleikans, og
meðan jeg lifi muntu lifa meðal vor, sem verndarengill
heimilis okkar, enda þótt þú sjert horfin sjónum.
S. S.
NOKKUR ÆFIATRIÐI
Bergljótar Sigurðardóttur.
Jóhann Skaptason, sýslumaður, skrifar æfiágrip móður sinnar
samkvæmt tilmælum síra Benjamíns Kristjánssonar vegna
dvalar Bergljótar að Laugalandsskóla.
Bergljót Sigurðardóttir
fæddist að Kollsstaðagerði
á Völlum í Suður-Múla-
sýslu 7. október árið 1874,
yngst fjögurra dætra hjón-
anna Sigurðar Guttorms-
sonar og Guðríðar Eiríks-
dóttur, setn þar bjuggu þá
á eignarjörð sinni. — Sig-
urður, faðir hennar, var
sonur hjónanna Guttorms
Vigfússonar, stúdents og al-
þingismanns, á Arnheiðar-
stöðum í Fljótsdal, og Hall-
dóru Jónsdóttur, vefara,
Þorsteinssonar, prests Stef-
Bergljót Sigurðardóttir.