Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 97
„Skagfirðingabúð.“
Þjóðhátíðin á Þingvöllum 1930.
Lilja Sigurðardóttir frá Víðivöllum í Skagafirði skýrir frá.*)
Þegar við urðum samferða í
fyrrahaust milli Varmahlíðar
og Blönduóss, baðstu mig að
senda „Hlín“, við hentugleika,
nokkra frásögn um „Skagfirð-
ingabúð“ á Þingvöllum 1930,
aðdraganda og tilhögun, og vil
jeg leitast við að verða við
þeirri bón þinni, því það at-
vikaðist svo, að jeg varð mikið
við málið riðin.
Þar er þá fyrst til máls að
taka, að á sýslufundi Skag-
firðinga veturinn 1928 var
kosin hátíðanefnd til að sjá
um undirbúning og þátttöku
Skagfirðinga í Alþingishátíð-
inni. —- Var sýslumaður, Sigurður Sigurðsson, formaður henn-
ar, auk hans Hansína Benediktsdóttir, læknisfrú, Steingrímur
Steinþórsson, skólastjói'i á Hólum, Sigurður Björnsson, bóndi á
Veðramóti, og jeg man ekki glögt, hver var 5. nefndarmaður,
*) Lilja Sigurðardóttir, Ásgarði í Blönduhlíð, hefur stundað
margt um æfina: Verið húsmóðir á mannmörgu heimili, kenn-
ari í Húsmæðraskólum í vefnaði og matreiðslu, garðyrkjukona
og hjúkrunarkona.
Nýbýli hefur hún reist, ásamt fóstursyni sínum, Friðjóni, á
eignarjörð sinni í Víðavallalandi, og staðsetti það þar sem síra
Pjetur, prófastur, hafði matjurtagarða á sínum tíma, en hann
var einn fyrsti garðyrkjumaður í Skagafirði. — Garðurinn, sem
aldrei brást kallaði hann „Lukku“. Einmitt þar reisti Lilja
hús sitt.
I.ilja Sigurðardótt ir
frá Víöivöllum.