Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 91
Hlín
89
Páll, kóngsbándi, kona hans og Klara Semb.
En efni þjóðkvæðanna, sem sungin eru, gefur dansi og
söng innihald. H jóðfall lags og hreyfinga bindur hugina
í skorðum sögunnar, sem frá er greint. — Hópurinn tekur
þátt í örlögum og atburðum, senr þar er lýst. — Þess-
vegna er færeyskur dans svo lítt til sýninga fallinn, að
áhorfandi skynjar ekki alt, sem fram fer, og ekki á sama
hátt og hópurinn, sem dansar. — ’Það eru líka sjaldan
áhorfendur í heimalandinu, fáir hafa „styrk til þess að
standa hjá“ til lengdar, þegar byrjað er að kveða.
Talið er að Islendingar hafi átt sinn þjóðkvæðadans,
svipað Færeyingum, en kristileg siðavendni hafi rutt hon-
um úr vegi. — Kunnugt er, að Guðbrandur biskup fól
Einari skáldi í Eydölum að kveða söguleg trúarljóð unr
efni úr Biblíunni, „að af nrætti takast þær brunavísur og
Afmorskvæði", senr hann kvað tíðkast, og er þar að lík-
indunr átt við danskvæði. — Leifar íslenskra danskvæða
hafa verið teknar saman í nrjög aðgengilega og fallega
bók, undir nafninu „Eornir dansar“. (Ólafur Brienr.)
í Færeyjum lrafa ekki ríkt nreiri heimsafneitarar en svo,