Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 72
70
Hlín
Starí' prestkonunnar er mikið og margþætt. — Það er
þessvegna nrikils virði fyrir okkur að hafa eignast vett-
vang, þar sem við getum rætt áliugamál okkar og orðið
hver annari til leiðbeiningar og uppörfunar í starfinu. —
Það hefur einhverntíma verið sagt,að ef það væri til starf,
sem væri vandasamara en starf prestsins, þá væri það starf
prestkonunnar.
Guð gefi, að okkar unga fjelag megi stuðla að því, að
við, einmitt þessvegna, verðum færari um að gegna okkar
háleita og oft vandasama hlutverki.
KIRKJAN HEIMA HJÁ ÞJER.
Erindi flutt um Æskulýðshelgina 28 .sept. 1958 í Fyrstu
lútersku kirkjunni í Winnipeg. — Erindið flutti Unn-
steinn Eyjólfsson, forseti Æskulýðssambands
kirkjufjelagsins.*)
Þegar jeg fór að liugsa um það efni, er jeg skyldi taka
til umræðu við Jretta tækifæri, rifjuðust upp fyrir mjer
sögur, sem nrjer hafa verið sagðar frá frumbýlingsárun-
um hjer vestra, er forfeður okkar og formæður tömdu
sjer þá venju að setjast umhverfis dagstofuborðið á kvöld-
in og lesa valda kafla úr ritningunni, eða öðrum guðs-
orðabókum, við dauft og blaktandi steinolíuljós. — Á
Jressum dögum útvarps og sjónvarps, má gera ráð fyrir
því, að sú venja sje að mestu lögð niður.
En einmitt þess vegna hefur mjer hugkvæmst að tala
við ykkur í dag um efnið: Kirkjan heima hjá þjer.
Vildi jeg mega vekja athygli á þeirri staðreynd, að
*) Móðir Unnsteins er Arnheiður, dóttir skáldsins Guttorms
Guttormssonar í Riverton, en faðir hans var sonur Gunnsteins
Eyjólfssonar, rithöfundar, sem einnig var skáld. — Unnsteinn
ráðgerir að stunda guðfræðinám.