Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 145
Hlin 143
ila hjer í firðinum í vetur, er núna á Flateyri. — Hún virðist
ætla að fá nóg að gera hjer.
Það varð ekkert af vefnaðarnámsskeiðinu, sem Kvenfjelagið
ætlaði að halda. Það var of seint hugsað, en kemur vonandi
síðar.
Kona bæjarstjóri. — Kópavogskaupstaður mun vera yngsti
kaupstaður á landinu. Bygðin er og mjög ung, því hún mun
hafa hafist rjett fyrir 1950. — Nú eru íbúarnir orðnir um 5300
að tölu. — Eftir síðustu bæjarstjórnarkosningar valdi bæjar-
stjórn kaupstaðarins konu fyrir bæjarstjóra, og er það eina
konan á landinu, sem gegnir slíku ábyrgðarstarfi. — Frú Auður
Auðuns er, eins og kunnugt er, forseti bæjartsjórnar Reykja-
víkur. — Konan, sem gegnir bæjarstjórastörfum í Kópavogi,
heitir Hulda Jakobsdóttir.
Úr Flatey á BreiðafirÖi er skrifað á útmánuðum 1959: — Jeg
þakka þjer kærlega fyrir Fundargerð S. N. K., jeg hafði mjög
gaman af að lesa hana og gaman hefði verið að geta tekið þátt
í þessu öllu með ykkur. — Það er mikið starfað innan kven-
fjelaga-sambandanna og mörgu góðu og þarflegu hafa þaukom-
ið í verk. — Hjer var eitt sinn öflugt kvenfjelag, en nú er ekki
að tala um slíkt, fólk flyst hjeðan árlega, þar sem engin at-
vinna er fyrir utan fáa bændur, sem hafa lítinn búskap, og eru
á leigujörðum. — Það er alt útlit fyrir, að eftir nokkur ár fari
Flatey í eyði — með sárri hrygð hugsar maður til slíks, — hjer
var þó fyrir nokkrum árum mikil menning og mikið athafnalíf,
eins og mörgum er kunnugt. — Klaustur var sett hjer 1172, og
sjest hjer ennþá á svonefndum Klausturhólum, steinninn með
höggvinni skál í, sem að gamalli sögn var notuð undir vatn,
sem fólk deif höndunum í áður en gengið var inn í klaustrið. —
Þessi steinn er á túni föður míns, og er það eina jörðin, sem
ekki hefur selst út úr hreppnum. — Þar var líka svonefndur
Olafsbrunnur, en nú er búið að fylla hann upp, haldið var að
hann hefði verið fyrir klaustrið. — S. B.
Síra Jón Auðuns skrifar á jólaföstunni 1958: — Jag þakka
kærlega fyrir „Hlín“, það ágæta rit.
Jeg frjetti í haust að María Andrjesdóttir, systir Ólínu og
Herdísar, 99 ára gömul, hefði borið „Hlín“ í húsin í Stykkis-
hólmi í haust.
Kannske á „Hlín“ Halldórudóttir elsta blaðberann í heimi!
Prestur á Norðurlnadi skrifar: — Afi minn var mjög söng-
vinn og eignaðist fiðlu, sem hann spilaði á að gamni sínu.
Hann átti, eins og margir bæjarbúar á þeim árum, nokkrar