Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 88
86
Hlín
Svínavatni, Au.-Hún. — Sýningarmunir úr íslenskri ull
vöktu mikla atliygli á sýningunni.
Fjelagið „íslensk listiðn“ annaðist undirbúning af ís-
lands hálfu. — Listiðnaðarmunir, sem bárust, voru metnir
af hinni föstu dómnefnd fjelagsins, og nokkru síðar voru
allir munirnir, sem samþyktir voru, sendir til Gauta-
borgar til yfirdóms, og svo var einnig um þá muni,' sem
hin aðildarlöndin höfðu valið.
Ráðgert er að næsta norræna Listiðnaðármannaþing
verði haldið í Reykjavík 1961, og þá haldin Norræn lást-
iðnaðarsýning um leið.
Sigurður málari Guðmundsson.
Sól, er himins hafs um ála
hellir rósageislum ljósum,
í þeim lof þitt ljóst mun skrifað
letri fránu um sali mána.
Gleymast ræður og kreddukviðir,
er klerkar skrifa, en þitt nafn lifir,
himinsól meðan hafs um ála
hellir rósageislum ljósum.
Líf er dauðann eftir, efa
enginn má, er sjer, hve þráir
ljúfan ástmög lýður inn besti,
listamann sinn hauðrið fanna.
Hvert eitt óspilt, íslenskt hjarta,
óskadrengur mun byggja lengi,
geislarós meðan gljár um ása
gullinfrán und þaki mána.
Jón Ólafsson. Ort í Washington 1875.