Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 105
Hlin
103
gera það, þegar jeg yrði stór, en þegar mjer, svo að lokum varð
ljóst, að það yrði jeg aldrei, var orðið of seint að breyta um. —
Þessa hátíðisdaga á Þingvöllum var jeg þó í peysufötum systur
minnar. — En sennilega hef jeg verið eina konan, eða jafnvel
eina manneskjan, sem alla dagana var á heimagerðum, svörtum,
hvítbrydduðum sauðskinnsskóm. — Hafði jeg þá með til að
nota þá, meðan jeg væri við undirbúninginn, en treysti mjer
svo aldrei til að skifta um skó, mjer leið svo vel á þessum. —
Vona jeg að það hafi engan hneykslað.
Að Alþingishátíðinni lokinni var seinna um sumarið haldin
hjeraðshátíð í Hegranesi, þar var Búðin sett upp með sömu
skreytingu og á Þingvöllum. (Þess skal getið, að það var ekki
hið sama tjald og við höfðum á Þingvöllum. — Nefndin óskaði
að fá eitt af nýju tjöldunum, og fjekk það að sjálfsögðu, þegar
tjöldin voru tekin niður. — Var það tjald V3 minna en það sem
við höfðum á Þingvöllum.)
Á hjeraðshátíðinni í Hegranesi var sjerstaklega tekið á móti
skagfirskum Vestur-íslendingum og kaffidrykkja fyrir þá í
tjaldinu á undan veitingasölunni. — Höfðum við bundið litla
blómvendi og stungið í hvern þeirra smá-pappírsflaggi, og
lögðum við hvern disk. — Yfir þessari hugulsemi urðu þeir
grát-klökkir, kváðust allir þurka þessi blóm, sem sprottin væru
í skagfirskri mold, og láta síðan leggja þau í kistu sína. —
[Stephan G. fór með mold úr Skagafirði til að sá yfir grafreit-
inn sinn. — „Römm er sú taug.“]
Sýslan bar allan kostnað af hátíðahöldunum á Þingvöllum:
Kostaði för mína suður og guldu mjer kaup. — Aðstoðarmenn
mínir fengu að sjálfsögðu sama kaup þá dagana, sem þeir unnu
hjá mjer, og þeir höfðu í Reykjavík. — Sýslan gaf mjer Alþing-
is-borðflaggstöngina með merki hátíðarinnar og 6 silfurteskeið-
ar með hátíðamerkinu. — Var þetta alt með nafni mínu og
meiri áletrun.
Sýslan annaðist uppsetningu og skreytingu tjaldsins á hjer-
aðshátíðinni í Hegranesi, og endurgjaldslaust var mjer lánað
tjaldið, ásamt öllum búnaði þess, á töðugjöldum mínum að Ás-
garði, nýbýli mínu í Víðivallalandi, í ágúst um sumarið. — Þar
voru samankomin börn og aðstandendur þeirra, sem og eldra
fólk og aðrir, sem anna vegna höfðu ekki getað sótt hjeraðshá-
tíðina í Hegranesinu, og því síður Alþingishátíðina á Þingvöll-
um. — Heimsóttu mig þennan dag 190 manns.