Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 141
Hlin
139
viku. — Eitt hjá Helgu Sigurðardóttur, skólastjóra, í nýja
skólahúsinu — Það er fallegt og ágætt. — Helga er dugleg að
ganga „Fyrir kóngsins mekt“ og fá loforð, vera dregin á loforð-
um, þau vafasöm, en á endanum þó trygg. — Þetta er húsið,
sem landið ljet byggja yfir rektor Mentaskólans, en núverandi
rektor vildi ekki flytja úr sínu húsi. —Þetta hús stóð því autt,
og tiltölulega lítill tími, sem fór í breytingar. En að bíða eftir
byggingu nýja Kennaraskólans hefði orðið erfið bið fyrir Hús-
mæðarkennaraskólann. — Það er nú þegar skortur á hús-
mæðrakennurum.
Svo var Bandalag kvenna þarna með fund. — Þar sátum við
Aðalbjörg Sigurðardóttir, formaður, hlið við hlið, og þar feng-
um við þetta ágæta kaffi, og Aðalbjörg og Guðrún Pjetursdótt-
ir, formaður K. f., hjeldu fínar ræður fyrir Helgu og þökkuðu
hennar dugnað og forsjálni í þessu húsamáli o. fl.
Helga ljómaði! — K.
Sveitakona skrifar: — Oft hef jeg verið að velta því fyrir
mjer, hvernig gæti staðið á því, að svo margar ungar konur nú
til dags kvarta um veika fætur: Bein- og æðahnúta, og hvers-
konar önnur óþægindi í sambandi við fæturna.
Mjer hefur dottið í hug, hvort ekki mundi vera um að kenna
steingólfunum, sem eru svo víða í eldhúsunum ykkar.
Þegar jeg var ung stúlka, var jeg í hússtjórnarskóla. — Gólf-
ið í eldhúsinu var úr steipsteypu. — Aldrei fyr á æfinni hafði
jeg fundið til í fótunum, en jeg var svo kvalin á kvöldin, þegar
jeg var komin upp í svefnherbergið, og ætlaði að fara að hátta,
að jeg hafði ekki nokkurt viðþol, tók oft það ráð að setja fæt-
urna ofan í kalt vatn og standa í því þar til jeg sofnaði.
Svo kom að því ,að jeg eignaðist steinsteypt hús. — Jeg tók
ekki í mál að hafa steypt gólf í eldhúsinu, heldur trjególf, enda
hef jeg aldrei fundið til þreytu eða verkja í fótunum öll
þessi ár.
Þá hef jeg einnig veitt því eftirtekt, að í mörgum nýtískuhús-
unum eru eldhúsgluggarnir á móti norðri.
Góðu konur, hafið ekki þá tilhögun í nýju húsunum ykkar. —
Hafið eldhúsið á móti suðri, og helst líka austurglugga. — Þá
fáið þið austur- og suðursól. — Það er ekki svo lítið atriði,
hvernig eldhúsið er staðsett, þar sem þið starfið svo mikið
flesta daga. — Reynið að hafa afskifti af tilhögun þess, þegar
bygt er. — Heiðbjört.
Sveitakona skrifar: — Það er mikið sótt eftir að koma börn-
um í sveit úr kaupstöðum og kauptúnum, en það er erfitt fyrir
sveitakonurnar að bæta því á sig að taka kaupstaðarbörn til
l