Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 32
30
Hlin
bræður, synir Jóns Árnasonar frá, Hólmi, ennfremur Árni
í Stakkagerði í Vestmannaeyjum, bóndi og formaður þar,
og loks Þórður mormónatrúboði frá Utah í Bandaríkj-
um, Norður-Ameríku. —
Þá voru og af sömu ætt hin
góðkunnu systkini: Loftur
í Neðra-Seli á Landi, Gróa
í Heysholti og Guðrún frá
Holtsmúla.
Móðurætt frú Oddnýjar
er að öðrum þræði hin svo-
kallaða Múlakotsætt. Var
Sigurþór Ólafsson í Kofla-
bæ, og haris systkini, af
þeirri ætt. — Að hinu leyt-
inu var ættin úr Skaftafells-
sýslu, frá Jóni Magnússyni
á Kirkjubæjarklaustri, sem
mikill ættbálkur er kom-
inn frá og víða dreifður.
Móðuramma frú Oddnýjar
og Guðrún, móðir Jóns í
Hemru og síra Bjarna á Mýrum, voru systkin.
Frú Oddný dvaldi á barnsaldri í Landeyjum, en á
æskuárum aflaði hún sjer náms í hjúkrunarfræðum í
Reykjavík og Kaupmannahöfn. — Að afloknu námi starf-
aði hún nokkur ár sem hjúkrunarkona, eða þar til hún
giftist He'lga Jónassyni lækni og alþingismanni.
Eignuðust þau hjón fjóra syni: Jónas, bifreiðastjóra á
Hvolsvelli, kvæntur Guðrúnu Árnadóttur frá Miðey,
Helga, stjórnarráðsfulltrúa í Reykjavík, Hrafnkel, lækni,
kvæntan Helgu Kemp, og Sigurð Helga, fulltrúa í
Reykjavík, kvæntan Stefaníu Kemp.
Frú Oddný og Helgi læknir áttu heima á Stórólfshvoli
frá 1923 til 1956, eða í 33 ár. Fluttust þá til Reykjavíkur
og btia nú að Bollagötu 7 þar í bæ.