Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 144
142 Hlin
tækifæri til slíkra ferðalaga, er það góð tilbreyting frá hvers-
dagsstörfunum.
íbúar í Eyrarsveit eru nú um 500, þar af búa 350 í Grafar-
nesi, og hefur kauptúnið, sem stendur fyrir botni Grundar-
fjarðar, bygst upp á síðustu 15 árum. — Flest unga fólkið sest
að í kauptúninu, þegar það stofnar sitt eigið heimili, einnig flyst
hingað fólk frá öðrum bygðarlögum. — Hjer eru góð skilyrði
til útgerðar, enda vaxandi útgerð árlega. — í vetur eru gerðir
út hjeðan 8 stórir vjelbátar. — Atvinna er oftast næg, og um
vertíðina getur heimafólk eitt ekki unnið úr þeim afla, sem á
land berst. — Hjer er því oftast margt aðkomufólk um vertíð-
ina. — Auk hraðfrystihúss er hjer beinamjölsverksmiðja. —
Töluverðar húsabyggingar eru hjer árlega. — Nýlega er hafin
smíði nýs barnaskólahúss, og vonir standa til, að innan tíðar
verði hafist handa um byggingu nýrrar kirkju hjer í kaup-
túninu.
Vegasamband er hingað frá Stykkishólmi, og er allgott um
sumartímann. — Flestar ár eru brúaðar, og vonum við, að
brátt verði versta farartálmanum á leiðinni hingað rutt úr vegi,
er brúað verður svokallað Mjósund í Hraunsfirði. — Leiðin
mun þá styttast allmikið og losna þá vegfarendur við að sæta
sjávarföllum í botni Hraunsfjarðar, en það á sjer stað um stór-
straum.
Ferðamannastraumur er mikill á sumrin, enda hefur sveitin
orð á sjer fyrir sumarfegurð. — Hin háu, sjerkennilegu fjöll,
sem umlykja sveitina, og þá sjerstaklega Kirkjufell með allri
sinni reisn, vekja aðdáun allra, sem hingað koma. — Við, sem
hjer búum, trúum því, að kauptúnið hjer eigi sjer framtíð, og
einnig með bættum skilyrðum, muni ferðamannastraumur auk-
ast hingað, ekki síst, þegar vegasamband er komið á milli
Grundarfjarðar og Ólafsvíkur.
Enginn, sem hingað kemur, mun verða fyrir vonbrigðum
hvað náttúrufegurð snertir.
Á Hvolsvelli í Rangárvallasýslu er að myndast þorp, sem hef-
ur á 2. hundrað íbúa. Þar er nýbygt glæsilegt verslunarhús,
sem Kaupfjelag Rangæinga rekur. — Einnig er þar þvottahús,
og er sá háttur á, að hver einstakur kemur með sinn þvott og
þvær hann sjálfur. Mjög mikil aðsókn er að þessu þvottahúsi,
og komið er þangað víðsvegar að úr sýslunni.
Úr Dýrafir'ði er skrifað á jólaföstunni 1958: — Kristín Krist-
jánsdóttir frá Hjarðardal, sem var s.l. vetur t.il náms á skóla
fyrir hjálparstúlkur í Noregi, hefur verið á þönum milli heim-