Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 39
Hlin
37
frú Oddný var ung mær í þessari sveit, yrkir um brimið
við Landeyjaströnd, og kallar það voldugt hjartaslag haf-
djúpsins kalda, og segist drekka af hljóm þess kraft og
frið. — Ekki veit jeg hvort frú Oddný hefur gert slíkt hið
sama, en hitt er víst, að einhverstaðar frá hefur hún feng-
ið sinn mikla kraft til starfa og sína miklu hugarrósemi
í samskiftum við samferðamennina. — En á hugarrósemi
þurfti hún oft að halda, t. d. þegar rnaður hennar var í
ferðalögum. — Lað bljes ekki altaf blíðviðrið um vanga
læknisins, þegar hann þurfti í náttmyrkri og stórhríðum
að brjótast áfram, ekki í uppljómuðum og upphituðtun
bifreiðum, eins og nú tíðkast, og ekki altaf „á fáki fráum
fram um veg“. En það vissu rnenn, að læknirinn var eng-
inn veifiskati, heldur drengilegt karlmenni í liverri raun.
Jeg vil nú ljúka máli mínu, og biðja frú Oddnýju að
meðtaka frá mjer og konu minni persónulega, mínum
sveitungum, Hvollireppingum, og sýslubúum öllum,
kærar þakkir fyrir gifturík störf, gestrisni og góðvild, um
leið og vjer færum henni blessunaróskir fyrir öll ókom-
in ár.
Páll Björgvinsson, Efra-Hvoli.
Þórunn Ingibjörg Baldvinsdóttir.
Fædd 28. september 1879. — Dáin 30. júlí 1914.
Þórunn Ingibjörg var fædd á Bollastöðum í Blöndu-
dal, Au.-Húnavatnssýslu, 28. sept. 1879. — Foreldrar
hennar voru hjónin Baldvin Einarsson og Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, stjúpdóttir Guðmundar Gíslasonar, bónda
á Bollastöðum. — Baldvin var hálfbróðir frú Guðlaugar,
fyrri konu síra Hjölrleifs Einarssonar á Undirfelli, og
voru þau því systkinabörn Einar H. Kvaran, ritlröfundur,