Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 21
Hlin
19
Skildi þá góð sál og göfugt hjarta við mæðulíf þessa
heims.
Eiríkur Magnússon, bókavörður, Cambridge.
KVEÐJUORÐ
við jarðarför Þorbjargar Sveinsdóttur 16. jan. 1903.
Flutt af Þórhalli Bjarnarsyni, biskup.
„Kærleikurinn fellur aldiei úr gildi.“ — Þessi orð hins
mikla postula festust í huga mjer, þegar jeg var að leiða
fram myndina af hinni látnu konu, sem vjer kveðjum í
dag.
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi, það eru trúar- og
vinarorð við hvern dánarbeð, þegar leiðir vinanna skilj-
ast, og hjer á svo sjerstaklega vel við að minnast þessara
orða, af því að hún, sem nú hefur í hárri elli fengið þráða
hvíld eftir þungar þrautir — hún elskaði svo mikið. —
Kærleikur hennar var heitari og sterkari en vjer þekkjum
til hjá þeim konum og körlum, sem vjer höfum kynst á
lífsleiðinni. — Kærleikseklurinn logaði í sálunni og skein
úr augunum, og því hjeldu þau áfram að vera ung og
fjörug og hvöss fram til hinna efstu ára og mánaða.
Hún elskaði Krist og kirkju lians. — Sjálf lindin alls
kærleika, upphaf hans og endir, var sístreymandi í brjósti
hennar, helgaði alt hennar líf, styrkti hana og huggaði í
öllu mótlæti. — Hún kunni þau öll og geymdi í sjóði
hjarta síns trúarorðin dýpstu og innilegustu, sem á vora
tungu hafa verið töluð, og vígð í ljóði vors dýrðlegasta
sálmaskálds.
Ilún elskaði köllunarstarf sitt, einmitt mest fyrir það,
hvað hennar auðuga móðurhjarta átti þar sjerstakt tæki-
færi til að sýna mörgum hjálparþurfandi ástaratlot og
2'