Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 58
56
i
Hlín
ber á: Ung og efnileg dóttir, sem hún elskaði, var frá
henni tekin 12 ára gömul. Enginn dleppur með öllu við
liin breiðu spjót lífsreynslunnar. Að lokum verður æfi-
raun allra fullkomnuð með þjáningum.
Börn Guðrúnar og Valdimars hreppstjóra Pálssonar,
þau er upp komust, eru þessi: Jóhann, lengi stórbóndi á
Möðruvöllum, nú bóksali á Akureyri, kvæntur Helgu
Kristinsdóttur frá Samkomugerði, Ragnheiður, gift
Ragnari Ólasyni efnafræðingi, forstjóra verksmiðjunnar
„Sjöfn“ á Akureyri, og Ásgeir, byggingaverkfræðingur á
Akureyri, kvæntur Auði Aðalsteinsdóttur Eiríkssonar,
námsstjóra í Reykjavík.
Með Guðrúnu Jónasdóttur er horfin úr vorum liópi
ein af tilkomumestu og mikilhæfustu liúsfreyjum Eyja-
fjarðar, kona sem varð ógleymanleg öllum vinum sínum.
— Blessuð sje hennar minning!
Benjamín Kristjánsson.
Ólafía Sigríður [ónsdóttir,
Fædd 21. september 1870. — Dáin 27. febrúar 1954.
MINNIN GARORÐ
Mig langar til að minnast hjer með nokkrum orðum
konu, sem jeg þekti urn árabil. — Það sem einkum hefur
gert mjer hana minnisstæða var óvenjulega heiðríkt hug-
arfar, skarpskygni hennar á blæbrigði hins daglega lífs,
góðar gáfur og óbifanleg trúarvissa. — Þessi kona var
Ólafía S. Jónsdóttir, sem um mörg hin síðustu æfiár átti
heima á Laugavegi 153 í Reykjavík.
Ólafía S. Jónsdóttir var fædd að Seli í Grímsnesi 21.
september 1870. Foreldrar hennar voru þau hjónin Jón
Oddsson og Guðbjörg Halldórsdóttir, búandi hjón á Seli.
Jón Oddsson var ættaður frá Bala í Gnúpverjahreppi, en