Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 149
Hlin 147
hafa hópinn sinn heima, hún vissi þá hvað við vorum að haf-
ast að.
Já, svona var það, Halldóra mín. Við stöllurnar tölum kannske
oftar um okkar heimili núna, vegna þess að við erum svo fjarri
þeim, en það er holt og ánægjulegt að rifja upp sína æskudaga.
Æskulýðsf jelag Akureyrarkirkju varð 10 ára árið sem leið. —
Á æskulýðsfundum eru jafnan tendruð 3 ljós: Fyrir Guð, fyrir
náungann, fyrir ættjörðina. — Megi þau ljós jafnan loga skært
í hjarta íslenskrar æsku.
Gamli bærinn í Glaumbæ í Skagafirði. — Þennan merkilega
bæ skoða nú þúsundir árlega, bæði innlendir og erlendir. —
Bærinn er Skagfirðingum til mikils sóma, en þess ber að minn-
ast, að það var útlendur maður, sem þarna var á ferð og skoð-
aði bæinn, sem þá var ráðgert að rífa til grunna. — Þetta sagði
ferðamaðurinn, að ekki mætti eiga sjer stað. Hann lagði fram
20 sterlingspund, sem þá var álitleg fjárupphæð, er skyldi varið
til að gera við gamla bæinn. Varð undrandi, er hann heyrði að
stæði til að rífa hann. Mikill íslandsvinur. — Þessi góði Eng-
lendingur heitir Mark Watson.
Af Hvalfjarðarströnd er skrifað vorið 1959: — Þú biður mig
um að segja eitthvað frá kvenfjelaginu okkar hjer á Hvalfjarð-
arströndinni. — Við höfum fengið miklu betri starfsskilyrði eft-
ir að hið nýja fjelagsheimili, „Hlaðir", var reist hjer í Saur-
bæjarlandi. — Við kvenfjelagskonurnar lögðum því til allan
kaffiborðbúnað fyrir 200 manns. — Nú höldum við fundina
okkar þar og allar samkomur og námsskeið. — Núna seinast
var hjá okkur Steinunn Ingimundardóttir, ráðunautur K. f. —
í næsta mánuði ætlum við að halda saumanámsskeið.
Frá Danmörku er skrifað vorið 1959: — í gær vorum við að
skoða gluggarúðurnar, sem eiga að fara í Skálholtskirkju. —
Þær eru gerðar af íslensku listakonunni Gerði Helgadóttur. —
Ljómandi listaverk, sem hæfir þessum helga stað. — Rúðurnar
eru gefnar af tveim merkum Dönum hjer í Höfn. Þær eru 29,
stærri og minni.
Úr brjefi frá prestskonu á Suðurlandi: — Satt er það, að
margt hefur áunnist til góðs. — Meiri máttur þeirra, er í skugg-
anum sátu. — Meiri jöfnuður. — Betra líf. — Minna fátæktar-
baslið. — Ekkert held jeg að hafi glatt mig meir öll mín æfiár
hjer í sveitinni, en þegar jeg sá að alt unga fólkið var orðið
jafn vel til fara á samkomum. — Enginn þurfti að draga sig í
hlje og æska þeirra gat notið sín. — Hitt er svo annað mál, að
nú er hugsað meir um föt en fræðslu. — Meira um dægurlaga-
10*