Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 85
Hlín
83
Ykkur er kunnugt um það, hve mikið álit jeg hef á
gildi sýninga fyrir menningu okkar og rnentun. — Jeg
samgleðst ykkur að liafa haft dug og kjark til að koma
þessari ágætu sýningu upp. — Það er mikið á sig lagt,
mikið fyrir því haft, jeg þekki það af eigin raun.
Svo óska jeg Sambandi sunnlenskra kvenna allrar
ljlessunar í bráð og lengd, Sambandinu í heild og öllum
deildunr þess. — Bið ykkur bera kveðjur.
Að þessum formála loknum leyfi jeg mjer að lýsa því
yfir, að handavinnusýning Sambands sunnlenskra kvenna
er opnuð.
SÝNINGIN Á SELFOSSI.
Sýning sú, sem lijer um ræðir, var að öllu leyti mjög
merkileg og athyglisverð. — Öll bygðarlög innan Árnes- .
og Rangárvallasýslna tóku myndar-
legan þátt í sýningunni, og öll til-
högun var til fyrirmyndar. — Sýn-
inguna sóttu um 1100 manns. Þarna
var jöfnum höndum sýnt gamalt og
nýtt, og naut sín vel saman. — Sýndi
sig ljóslega, að handavinna heimil-
anna, bæði karla og kvenna, er vel á
vegi stödd í þessurn hjeruðum.
Kvennaskóli Sunnlendinga á Laug-
arvatni hafð'i ágæta sjersýningu.
Eitt af því, sem vakti sjerstaka athygli sýningargesta,
voru saumaðar myndir, eftir Þorbjörgu Halldórsdóttur
frá Strandarhjáleigu í Vestur-Landeyjum. Saumaðar með
íslensku bandi, með krossspori og demantssaum.*)
*) Þorbjörg er fædd að Strandarhjáleigu í Vestur-Landeyj-
um 21. jan. 1875. — Faðir hennar, Halldór Guðmundsson, var
6*