Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 40
Hlin
38
og Þórunn. — Systur átti JÞórunn tvær, og voru þær eldri,
þær lijetu María og Guðlaug. — Allar voru þessar stúlk-
ur gáfaðar og glæsilegar. — Baldvin fór til Ameríku, þeg-
ar hann skildi við konu
sína, og báðar eldri dæt-
urnar með honum. — Ingi-
björg varð eftir á Bolla-
stöðum með Þórunni, og
þar ólst hún upp.
Um og eftir 1880 gengu
harðindi mikil um Norð-
urland, og var þá erfitt að
halda hita á smábörnum,
þar sem hvergi var yl að fá
nema við hlóðirnar í eld-
húsunum. Gripu þá mæð-
urnar til ýmsra ráða til þess
að halda lífinu í börnun-
um. Sumar ijetu einhverja
vinnukonuna liggja í rúm-
inu með börnin, aðrar
flúðu í fjósið með þau og það gerði Ingibjörg, móðir Þór-
unnar, hún fór með hana í fjósið. — Þá var þessi vísa
gerð: „Altaf gerast undur stór, alt frýs nema ijósið. Bolla-
staðabrúður fór barnið með í fjósið."
Snemma bar á óvenjulegum gáfum hjá Þórunni, hún
var fluglæs 6 ára gömul og las þá húslestur. — Stuttu eftir
að hún var fermd naut hún mikiliar mentunar, eftir því
sem þá gerðist um stúlkur, lærði t. d. að spila á orgel um
fermingaraldur heima á Bollastöðum hjá Pjetri Pjeturs-
syni, föðurbróður Pálma Hannessonar rektors, sem þar
bjó, og giftur var Sigurbjörgu móðursystur Þórunnar. —
Eftir það var hún við nám á Sauðárkróki hjá Herdísi,
systur Pjeturs, er síðar giftist síra Hálfdáni Guðjónssyni,
vígslubiskup, og svo var hún í Kvennaskólanum á Ytriey
og lauk þar prófi með hárri einkunn. — Veturinn 1899—