Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 20
18
Hlin
gott og göfugt. — I-Iið merkasta verk 'hennar í þessa átt
mun mega telja stofnun „Hins íslenska kvenfjelags“. —
Tilgangi fjelagsins lýsir höfundur laganna, er hún setti
því, þannig: „Tilgangur fjelagsins er sjerstaklega að
rjettindi kvenna á íslandi verði aukin. Og ennfremur sá
að efla menningu þeirra með samtökum og fjelagsskap. —
Auk þess vill fjelagið styrkja alt það, er horfir til fram-
fara í landinu, og leggja lið sitt til framsóknar í málunr
þeim, sem standa efst á dagskrá þjóðarinnar."
Eigi duldist Þorbjörgu það, að þótt tilgangur kven-
fjelagsins væri góður, þá væri þó eitt að lýsa yfir honum
og annað að koma honum í framkvæmd. Meðan fjelagið
væri frumbýlingur, vanefna og reynslulítið, mætti búast
við að ýmsir gallar yrðu á framkvæmdar-starfinu, og það
myndi því eiga fyrir sjer að mæta mörgum aðfinningum.
— En um það væri hún vongóð, að f jelagið mundi aldrei
láta undirróður, utan eða innan að, orka því að fá það
leyst upp.
Frá því að Þorbjörg stofnaði fjelagið 1894 var hún
leiðtogi þess og foringi til dánardægurs, og mun það
naumlega orðum aukið, að hún hafi verið lífið og sálin í
starfi þess þau níu ár, er hennar naut við.
Þessar helsti ófullkomnu minningarlínur leiðum vjer
nú til lykta með orðum merkrar konu í Reykjavík, sem
sjálf var í Kvenfjelaginu. — Vjer ætlum að margar af hin-
um valinkunnu konum í Reykjavík, sem gengu undir
skjöld Þorbjargar, geri þau að sínum eigin orðum. —
Þau hljóða þannig: „Oss er hughaldið að fá á prent æfi-
sögu þessarar góðu og gáfuðu konu, sem full var til dauð-
ans af elsku og kærleika til allra, sem hún náði til. —
Mjer er óhætt að fullyrða, að hún átti fáa sína líka. Og
þeir sem lesa lög þessa merkilega fjelags, sem hún stofn-
aði af hinni sterku menningarþrá sinni, munu sjá, hve
ríka sál hún átti.“
Þorbjörg Sveinsdóttir andaðist í Reykjavík 6. jan. 190-5
eftir langt og hart dauðastríð.