Morgunn - 01.06.1924, Blaðsíða 44
38
MORGUNN
Yfir því var lýst í byrjun samkomunnar, að líkamleg fyrir-
brigði gerðust þar engin, og að ekki væri heldur von á neinum
annars konar sönnunum. Félagsmönnum hafði áður, í samsæti,
sem félagsstjórnin hafði gengist fyrir, verið skýrt frá árangr-
inum af tilraununum og þeim verum, sem birzt höfðu. Nú
var búist við því, að einhverjum félagsmönnum kynni að
leika forvitni á þvú að heyra tal, er fullyrt var, þó aö það
væri ekki sannanlegt, að stafaði frá þessum verum. Húsið
varð líka troðfult. Fjórar vitsmunaverur gerðu vart við sig
af vörum miðilsins, sumpart með ræðuliöldum, sumpart með
samtali við forseta félagsins, sem stýrSi samkomunni. Þær
voru nokkuð ólíkar hver annari að málrómi og látbragöi.
Sams konar fundir eru alltíðir erlendis meðal spíritista,
þar sem miðill talar fyrir mannfjölda, sumpart í fullkomnu
sambandsástandi, sumpart undir misjafnlega miklum óiirif-
um. Hér hafa slíkir fundir aldrei verið haldnir fyr, enda
hafa forgöngumenn sálarrannsóknanna hér aldrei hvatt til
þeirra, með því aS það eru sannanirnar, sem þeir hafa jafn-
an lagt aðalálierzluna á að reyna að fá.
III.
Fundarskýrslur.
1. fundur.
8. febr.
Eftir að sungið var 2. sinn talaði stjórnandi miðilsins af
vörum hans, kv&ðst vera Mika, bað menn vera velkomna,
þakkaði fyrir, að til þessa hefði verið stofnað og bjóst við
góðum árangri. Bað síra Iíarald Níelsson að koma og tala
við sig inni í byrginu. Bað H. N. að því búnu að færa mið-
ilinn úr jakkanum. Bað um nokkurn veginn stöiSugan söng.
Meðan sungið var næst, kom hávaxin vera í alhvítum
hjúp út undan tjaldinu lijá síra H. N., stóð fyrst kyr, rétti