Morgunn - 01.06.1924, Blaðsíða 76
70
M 0 R G U N H
frá þessu brugðiö á seinni fundinum, þ. 21. marz, að því leyti,
að vér gengum allir úr skugga um, að loftrás nasanna var eðli-
leg með því að halda á víxl fyrir aðra nösina og láta miðilinn
blása gegnum hina nösina. Það lcvöld rannsakaði og Guðm.
Thoroddsen endaþarm miðilsins með því að þreifa mcö fingri
upp í þarminn, enda var miðillinn fús til að láta framkvæma
þá skoðun, þótt hann væri henni óviðbúinn.
Þá er vér höfðum athugað mi'ðilinn beran á gólfinu, var
honum vísað inn í byrgið og þar sat hann á stólnum meðan
fataskoðunin fór fram. — Þess skal getið, að endaþarmsskoð-
unin fór fram inni í byrginu.
Mú voru fötin skoðuð og hafði oss á undan lcomiS saman
um, að jakkinn, flibbi og slifsi skyldi tekið burtu, og var það
gert. — Þá var skoðuð flík fyrir flílc og að því búnu rétt inn
í byrgið, en þar fór miðillinn í þær: 1. þunn normal nærskyrta,
2. do. nærbrækur, 3. röndótt manchetskyrta lin, 4. svartir hálf-
sokkar með blám sokkaböndum, 5. utanyfirbuxur brúnar, 6.
vesti brúnt, 7. flatbotnaðir morgunskór. Alt var þetta vandlega
athugað af oss öllum, horft í gegnum ermar, boli, skálmar, gáð
að saumum og vandlega þuklað allstaðar þar sem tvöfalt var
eða fóðrað, ef ekki var liægt að liorfa í gegnum það móti Ijósi.
Vasar á vesti og buxum voru vandlega skoðaðir og þeim snúið
við. Á fyrra fundinum var skilinn eftir velktur vasaklútux*, ef
miðillinn skyldi þurfa að snýta sér, en á seinni fundinum var,
til frekari tryggingar, látinn mislitur vasaklútur í stað þess
hvíta. Þess skal geta, að hvergi fanst nein saumspretta á fötun-
um né nokkuð það á miðlinum, sem nokkura grunsemd gæti
vakið.
Miðillinn var mjög fús til allra þessara rannsókna og glað-
ur og ánægður meðan þær fóru fram.
Þá voru enn, til frekari tryggingar, skoðuð utanyfirföt
þeirra frú Kvaran og próf. Har. Níelssonar, en þau sátu næst
miðlinum á fundunum, sínum megin hvort. Var þetta gert til
þess að fyrirbyggja það, að grunur gæti leikið á því, að miðill-
inn hefði getað falið nokkuð á þeim,til þess að ná því af þeixn