Morgunn - 01.06.1924, Blaðsíða 56
50
MORGUNN
neinum líkamningum. Blektrónin verði að koma með fullkom-
inni stilling; enginn hræðslutitringur megi vera á sálunni..
Þegar miðillinn vaknaði, kvartaöi hann sáran um, hve sig hefði
dreymt illa, sagði við H. N., að sér hefði í svefninum fundist.
fundarmenn allir orðnir að köttum, sem væru að reyna aS>
stökkva á sig. Og hann virtist hálfskelfdur.
6. fundur.
25. febr.
Eftir að miðillinn var kominn í sambandsástand, rétti
hann báðar hendurnar frá stólnum, sem hann sat á í byrginu,
til frú Kvaran. Hún tók um þær og hélt þeim föstum, meðan
það gerðist, sem nú skal greina:
Skothurðirnar milli fundarstofunnar og skrifstofunnar
tólcu að titra. Því næst hrukku þær hvor frá annari, allhratt.
Dálitla stund var bilið milli þeirra óbreytt. Þá tóku þær að:
færast saman með hægð, en lokuðust aldrei að fullu. „Mika“
lét þess getið, af vömm miðilsins, að það hefði ekki verið
„nogen god Intelligens“, sem hefði opnað hurðirnar, en gerði
að öðru leyti enga grein fyrir fyrirbrigðinu.
„Mika“ sagði, að nú væri hann búinn að ganga úr
skugga um, að miðilskraftur E. N. sé enn í lagi og líltianm-
ingar muni aftur koma, en óvíst á hvaða fundi. Framför sé-
orðin, og þetta sé öruggasta leiðin, sem þeir fari nú. Hann
lýsti og inni í byrginu nálcvæmlega fyrir ]H. N., hvernig
gengið hefði til við síðasta fundinn í Kristjaníu, rakti ná-
kvæmlega, hvernig útfrymið hefði rutt sér braut á þeim fundi.
[Á eftir fundinum skýrði frú Vilborg frá sýn, er fyrir
hana hafði borið, meðan á fundinum stóð. Sömuleiðis fór-
ísleifur Jónsson á sambandsástand á eftir fundinum. Sýn
frú Vilborgar og atriði, sem kom fram í sambandsástandi
í. J„ virtust varpa nokkuru Ijósi yfir skothurða-fyrirbrigð-
iö og ummæli ^„Mika' ‘ um það. En hvorttveggja var þess.
eðlis, að ekki þykir rétt að birta það.]