Morgunn - 01.12.1931, Page 102
228
M0R6UNN
hafði hann sent út í Whitechapel hveríið 3000 lögreglu-
þjóna í algengum búningi og 1500 leyniþjóna, dulbúna
sem vélsmíða- og hafnarverkamenn, til að halda vörð. En
kviðristarinn komst í gegnum þá herkví, framdi glæp sinn
og slapp. Á konunni, sem hann myrti, var annað eyrað
alveg skorið af og hitt hékk að eins á taug.
Þessi harmleikur tók svo á taugar herra Lees, að hann
fór aftur til meginlandsins til þess að ná sér. Meðan hann
var erlendis, framdi kviðristarinn sextánda morð sitt og til-
kynti Scotland Yard með köldu blóði, að hann ætlaði að
»drepa tuttugu og hætta svo«.
Og nú kemur sá hluti sögunnar, er mest mætti líkja
við sjónleik.
Herra Lees kom skömmu síðar aftur til
Smorðíðda Englands og sat eitt kvöld í Criterion að
máltíð með tveim vinum sínum frá Vestur-
heimi. Þá sneri hann sér alt í einu að þeim og hrópaði:
»Guð minn góður! Jakob kviðristari hefir enn þá framið
nýtt morð.« Annar þeirra, herra Roland B. Shaw, námu-
eigandi frá New-York, leit á úrið og sá að klukkan var
gengin ellefu mínútur í átta.
Klukkan 10 mínútur yfir átta fann lögregluþjónn lík af
konu í Crown Court í Whitechapel, og var hún skorin á
háls frá öðru eyra til annars og líkami hennar bar allar
menjar af handbragði kviðristarans.
Herra Lees og félagar hans fóru samstundis til Scot-
land Yard, og meðan herra Lees var að segja sögu sína,
kom símskeyti með fyrstu fregnina um glæpinn. Umsjónar-
maðurinn, tveir yfirmenn í almennum búningi, herra Lees
og Vesturheimsmennirnir tveir óku í skyndi til Crown Court,
og þegar þeir komu þangað, kallaði herra Lees: Gætið í
hornið hjá veggnum, það er eitthvað ritað þar. Umsjónar-
maðurinn kveikti á eldspýtu og þegar loginn blossaði upp,
gátu þeir lesið: »Sautján, Jakob kviðristari«, er stóð ritað
með krít á vegginn. Og illræðismaðurinn hafði horfið án
þess að láta eftir sig nokkurt spor.