Morgunn - 01.12.1939, Blaðsíða 56
182
MORGUNN
ingarnar; einlægur tilgangur, sá tilgangur að Rafa áhuga
á að þjóna guði, þjóna hinu æðsta góða eftir þeim mæli,
sem hverjum einstökum er það opinberað.
„í ykkar heimi er þetta sjaldgæft. -Undir því yfirskini
að þjóna guði — gjöra guðs vilja — eru mennirnir oft að
leitast við að ná sínu eigin takmarki. Það er eins og þeir
vblji með annari hendinni halda fast við guð, en við einskis-
verð gæði með hinni. Hugir þeirra eru tvískiptir. Sann-
leikur getur ekki átt bústað í þeim. Þeir geta blekkt aðra;
þeir geta blekkt sig sjálfa — og sjálfsblekkingin er skað-
leg fyrir andlega þróun — en þéir geta ekki blekkt guð.
„Leitizt því við“, sagði liann, „að ala í brjósti fölskva-
lausa hollustu við sannleikann í hugsunum, orðum og at-
höfnum. Þá mun sál yðar verða hafin yfir þessa jarðnesku
muni, sem mundu draga hana niður, myrkva sjón hennar
og byrgja ljós hins guðlega kærleika. Þá mun yður veitast
og hverjum þeim, sem ástundar að læra af guði, leiðbeining
um það sem andlegt er. Venjið yður á, að hlýða hinni kyrr-
látu þýðu raust, sem þá hljómar fyrir sálu yðar og sýnið
auðsveipa hlýðni við þá leiðsögn, sem yður er þá veitt, því
að á slíkum stundum er yður birtur sannleikurinn í því
hlutfalli fullu, sem þér eruð hæf til að veita honum við-
töku“.
í annað sinn sagði Virðulegur, er við vorum komin út úr
Hugleiðingamusterinu: Nú hafið þið séð, hve langt er
hægt að ná, en er þér leitizt við að ná hinu fullkomna,
þá verður að varast að vanrækja og skeyta ekki um skyld-
ur lífsins — lífs yðar á jörðunni. Ef þér gjörið það, þá
lærið þér ekki að þekkja það, sem nauðsynlegast er í
lífinu. Lífið á jörðunni er ekki ætlað til þess að lifa það
burt í draumi. Það er með því að framkvæma með trú-
mennsku á hverjum degi skyldur þess og ætlunarverk,
hvort heldur stór eða smá og hvaða köllunarverk sem á að
vinna — að sálin öðlast þolinmæði, styrk og staðfestu. Fyr-
ir áhugasamar sálir getur oft verið erfitt margt, sem
skyldan býður, einkum fyrir þá, sem búa við þröngan hag