Morgunn - 01.12.1939, Blaðsíða 85
MORGUNN
211
eru farnir að fá áhuga fyrir þessu málefni voru, eru þess-
ar: Hvað þýðir þetta málefni fyrir yður? Hvað gjörir
hann fyrir yður?
Þegar maður hefir einu sinni gripið hinn feikilega þýð-
ingarmikla sannleika, sem felst í því að fá sönnun fyrir
framhaldslífi, sem menn fljótt fá, er þeir gefa sig við því,
þá veitir það hugrekki til að mæta hverju því, sem að
höndum ber í tilverunni.
Vissan um að þeir, sem vér þekktum í jarðlífinu, elsk-
uðum og treystum, séu enn þá, lifandi og geti komizt í
samband við oss (þó að vjer oft verðum ekki varir við
það á sömu stund) og að þeir óski heitt að hjálpa oss, eins
og þeir mundu hafa gjört, meðan þeir enn voru í efnis-
líkamanum, er geysimikil hvatning fyrir oss til að verja
lífi voru sem bezt vér getum.
Mér virðist, að þegar maður hefir viðurkennt staðreynd-
ir spiritismans og að til er annað lífssvið og lífsskilyrði,
þá sé það hin bezta hjálp til þess að þetta verði oss að
meiri notum.
í öllum erli og áreynslu nútíma lífs, er það að vísu ekki
auðvelt fyrir hvern og einn að fá áreiðanlegar sannanir
með því að þroska eigin sálræna hæfileika sína, en þó hef
ég ávallt haldið að nokkrum þroska í sálrænni vitneskju
geti sérhver náð, sem hefir til þess næga þolinmæði og
löngun.
En þeir geta lesið og heyrt um reynslu annara og veitt
því viðtöku á sama hátt og þeir mundu taka trúanleg orð
áreiðanlegs manns, sem ferðaðist í fjarlægt land og segði
frá því sem þar hefir borið fyrir þá, þótt þeir hafi ekki
sjálfir komið í það land.
Það eru, eins og allir vita, mörg mikilsverð mál og þekk-
ingaratriði sem allir þekkja, þótt hver einstakur geti ekki
fengið um það eigin persónulega reynslu.
Og það undraverða er, að einnig þekking á aðra hönd
getur veitt von og djörfung til þess að mæta hverju sem
14*