Morgunn - 01.12.1939, Blaðsíða 97
MORGUNN
223
ara helztu stjórnendanna, sem sagt höfðu að þeir sæju
ekki fyrir ófrið.
Það er fullsannað, að menn á æðri sviðum vita og segja
fyrir margt, sem vér ekki vitum, og á öllum tímum hafa
spámenn verið og gjört hið sama. En hitt er jafnkunnugt,
að ávallt hefur komið fyrir^ að spádómar hafa brugðizt.
Páll sagði: „Spádómur vor er í molum“, og hann vænti
eftir og sagði fyrir endurkomu Krists um sína daga, sem
ekki rættist.
Miðlastjórnendur hafa sagt fyrir flesta stærri viðburði
á síðustu árum og allt gengið eftir. Hitt þarf ekki að koma
á óvart, að eitt sinn bregði nokkuð út af og getur þó enn
að nokkru farið eftir, að ekki verði sem kalla mætti he'ms
eða Evrópustyrjöld.
Dulrænar gátur,
hvernig með þær ber að fara og þroska þær.
Ný bók með þessu nafni er nú fullprentuð og í þann
veginn að koma á bókamarkað. Höfundur hennar er Hor-
ace Leaf, sá hinn sami, er getið er og prentuð er smágrein
eftir hér framar í heftinu. Þýðingin er eftir Jakob Jóh.
Smára magister, og er það trygging fyrir, að hún er ágæt,
þótt ekki hafi ég borið saman við frumrit. Hann er einn
þeirra, er nú ritar hreinasta og áferðarfegursta íslenzku,
svo að vandfundin eru missmíði á. Efni bókarinnar er það,
sem í fyrirsögninni segir, og er hún hið áreiðanlegasta
og ítarlegasta, sem ritað hefir verið á íslenzku um það
efni. Útgefandi er „Árblik“, félag nokkurra áhugasamra