Morgunn - 01.12.1939, Blaðsíða 94
220
MORGUNN
En nú er ófriðurinn kominn, og hvað eigum vér spirit-
istar að segja um það? Ég spái, að brátt muni fara svo,
að menn munu leita þeirrar huggunar, sem spiritisminn,
og oft ekkert annað en hann, getur veitt. Þá mun oss verða
þörf á hinni óeigingjörnu hjálp andavinanna til þess að
hugga og hughreysta. Hæfileikinn til þess að geta það,
var það sem gjörði spiritismann að áhrifamesta huggaran-
um í heimsstyrjöldinni, og svo getur nú orðið aftur.
Sérhver spiritisti ætti að setja sér það mark að hjálpa
á þennan hátt svo mikið sem hann getur. Standa fast við
þær staðreyndir, sem hafa veitt spiritismanum þann mátt
til góðs, sem hann hefir nú orðið og gjöra hann hér eftir
enn þá meiri. Það mun verða þörf á bæði skyggni og dul-
heyrn og öðrum sálrænum hæfileikum og kröftum. Þeir,
sem hafa hlotið þessar guðs gáfur, eiga að gjöra sitt ítrasta
til að auka þær, því að með þeim er unnt að flytja sorgbitn-
um hjörtum gleði og sanna, að kærleikurinn heldur áfrarn
út yfir gröfina.
Samhliða þessari grein eftir H. Leaf set ég hér stuttan
kafla úr grein eftir annan mikinn miðil, Grace Cooke.
Stjórnandi hennar, White Eagle var einn þeirra, er sögðu
fyrir frið. Hann er hinn eini þessara stjórnenda, sem enn
er kunnugt, að skeyti hafi komið frá síðan ófriður hófst,
en munu væntanlega koma. Kaflinn úr skeyti hans hljóð-
ar svo:
Þó að yður finnist trú yðar hafa fengið áfall um stund,
þá endurtökum við það samt sem áður, að það mun verða
skyndilegur endir á ófriðnum.
Guð er almáttugur. Svo langt og ekki lengra getur mað-
urinn komizt. Frjálsræði mannsins er umlukt af vilja Guðs
og hönd Guðs mun verða útrétt á hinum ákveðna tíma,
þegar maðurinn hefir lært það, sem ætlað var og það verð-
ur hrópað: Hættið.
Það lítur út sem stendur að andaheimurinn hafi rangt
fyrir sér. En verið róleg og bíðið eftir hver niðurstaðan