Morgunn - 01.12.1939, Blaðsíða 105
MORGUNN
231
Nú hafði kirkjumálaráðuneytinu hugkvæmzt að ganga
í lið með þetta og ráðherrann skipað tvo menn ásamt bisk-
upi í sálmabókarnefnd, og var til ætlazt, að synodus kysi
tvo menn til viðbótar.
Vafalaust var þetta gjört af góðvild ráðherra í kirkj-
unnar garð og vottur um að hann vildi sýna áhuga á mál-
um hennar, meiri en venjulega er að fagna úr þeirri átt,
en alls ekki að hann vildi beita hana ráðríki með afskipta-
semi af innri málum hennar og því ekki vingjarnlegt að
slá á framrétta hönd, þótt eðlilegast hefði verið, að syno-
dus ætti hér öll upptök að.
Að þessu var þó fundið af nokkrum, sem þótti með því
eiga að taka fram fyrir hendur synodusar, sem ein ætti að
hafa frumkvæði og fjalla um þetta. Einnig var fundið að
skipun þeirra manna, er tilnefndir höfðu verið.
En því mun þó ekki verða neitað, að hverjum einstökum
manni eða fleirum saman er heimilt að gjöra tillögur um
burtfelling og upptöku sálma í sálmabókina og bjóða fram
handrit að nýrri sálmabók, og sízt ætti þá kirkjustjórn-
inni að vera óheimilt að eiga þar góðfúslegan þátt í.
Sálmabókinni væri með því engin hætta búin, því að
tillögurnar yrðu þó að ganga í gegnum hendur synodusar
og annara réttra hlutaðeigenda, og ekki verða teknar sem
ný sálmabók, nema þær stæðust þá eldraun. Það sýna afdrif
sálmabókarviðbætisins, sem áður er getið.
Ekki ætti það heldur að vera nein hætta, þótt eitthvað
af nýjum sálmum væri eftir höfunda úr annari kirkju-
deild en hin íslenzka þjóðkirkja, þegar sálmarnir eru and-
ríkir og hákristilegir. Það er kunnugt að andríkasta sálma-
skáld vort hallaðist að únítaratrú, en ekki hefir þess gætt
í sálmum hans eða það dregið úr aðdáuninni fyrir þeim.
Og einn hinn fegursta og vinsælasta af nýrri sálmunum,
sálminn „Hærra minn guð til þín“ hefir hann þýtt og aukið
(frumsálmurinn að eins 4 vers) eftir enska konu, Söru F.
Adams, sem var únítari.
Eins og á stóð tók syodus eftir tillögu flestra prófast-