Morgunn


Morgunn - 01.12.1950, Side 19

Morgunn - 01.12.1950, Side 19
Bréfin frá Erindi flutt í Sálarrannsóknafélagi Islands 2. mai 1950. Eftir Eggert P. Briem. Eins og allir vita, sem nokkuð hafa kynnt sér sálar- rannsóknir nútímans, hafa endurminninga-sannanimar, sem komið hafa fyrir milligöngu miðlanna, orðið öllu öðru fremur til þess að þeir, sem við rannsóknirnar hafa fengizt, hafa smám saman öðlazt þá vissu, sem þeir telja sig hafa fengið fyrir persónulegu framhaldslífi mannsins. Þessar sannanir hafa að sjálfsögðu verið misjafnar að sannanagildi, en sumar þeirra hafa verið svo góðar, að engin leið er að efast um að þær komi frá fólki, sem hefur lifað hér á jörðinni, og nú lifir á öðru tilverusviði. I kvöld ætla ég að segja ykkur sannanasögu, sem kom alveg óvænt á fundi hér fyrir um tuttugu árum. Þó sag- an sé orðin þetta gömul, finnst mér hún í engu hafa tap- að giidi sínu, enda má segja það, að góð sannanasaga tapi í rauninni aldrei gildi sínu, og sé slíkum sögum haldið til haga og þær vottfestar, geta þær aldrei orðið nema til þess að styrkja málefnið. Sannanirnar, sem komu þetta kvöld, hafa auðvitað fyrst °g fremst gildi fyrir það fólk, sem þær voru ætlaðar. En fólkið, sem sannanirnar fékk, sá líka, að þær gætu haft gildi fyrir fleiri, og bauð því fram þegar í stað, að segja mætti frá því, sem þama kom fram, svo að fleiri vissu, þótt það hafi ekki verið gert fyrr en nú, tuttugu árum síðar. Ég vil byrja á því að geta lítilsháttar um miðilinn, sem 7

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.