Morgunn


Morgunn - 01.12.1950, Blaðsíða 48

Morgunn - 01.12.1950, Blaðsíða 48
126 MORGUNN lífinu, kann ef til vill að finnast, að nokkuð mikil áherzla hafi verið lögð á sannanirnar í þessari frásögu. Og það er líka rétt, enda er tilgangurinn með frásögninni fyrst og fremst sá, að vekja athygli á hinum sterku sönnunum, sem þarna komu fram. Eins og þið vitið öll, er mikill fjöldi manna, sem þrá- ir að fá vissu fyrir því, að „maðurinn lifi þótt hann deyi“. Fyrir slíka menn eru endurminninga-sannanirnar venju- lega hið eina, sem verulega getur orðið þeim að liði, og helzt er líklegt til þess að veita þeim þá vissu, er þá vantar. Síðustu árin hefur mikill f jöldi nýrra félagsmanna bætzt í þetta félag — þeir skipta hundruðum. Margt af þessum nýju félagsmönnum eru ef til vill aðeins að byrja að kynna sér þetta málefni. Þeir eru að leita að sönnunum fyrir staðhæfingu spíritista um persónulegt framhaldslíf mannsins eftir dauða líkamans, en hafa ekki enn fengið þær sannanir, sem þeir telja fullnægjandi. Ef til vill eru einhverjir hér inni í kvöld, sem þannig er ástatt fyrir. Síðasta setningin í bréfi hjónanna í Gaulverjabæ, er þau skrifuðu, eftir að þau höfðu fengið fyrsta bréfið frá lát- inni dóttur sinni, var á þá leið, eins og þið munið, að allt, sem þar um ræðir „hafi verið nákvæmlega rétt og þess- vegna fullar sannanir fyrir þau, og þess vert að fleiri viti.“ Þótt þær sannanir, sem hver einstaklingur getur öðl- azt persónulega, hafi að sjálfsögðu mest gildi fyrir hann, eiga menn engu að síður að geta tekið gildar sannanir, sem aðrir en þeir sjálfir fá, svo framarlega sem slíkar sannanir fullnægja þeim mönnum, sem fengu þær, og menn vita, að óhætt er að treysta dómgreind þeirra, og að þeir skýri rétt frá reynslu sinni. Þannig er þessu varið á svo fjölda mörgum sviðum þekkingarinnar í þessum heimi, að við verðum að taka trúanlegt það, sem aðrir segja okkur. Hversvegna skyldi það ekki eins vera óhætt, þó að um sé að ræða reynslu manna á hinu sálræna sviði? Ég hefi því flutt þessa frásögu nú í kvöld, ef vera mætti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.