Morgunn - 01.06.1962, Blaðsíða 32
28
MORGUNN
Estelle Roberts er fædd 10. maí 1889 í London, af góðu
fólki en ekki sérlega efnuðu. Systkinin voru 8 að tölu, og
vakti hún ekki neina sérstaka athygli í umhverfi sínu,
nema fyrir það eitt, að frá fyrstu dögum, sem hún man
eftir, heyrði hún raddir, sem aðrir heyrðu ekki. Hún var
aldrei hrædd við þessar raddir og kallaði þær andafólkið
sitt. En faðir hennar var sannfærður um, að illir andar
ásæktu barnið og reyndi að berja þessar illu vættir frá
henni með því að berja hana sjálfa með leðurólinni sinni.
Hún var ekki gömul, þegar hún fór að sjá fólkið, sem
raddirnar átti, og var lítill, nýdáinn bróðir hennar einn
fyrsti gesturinn. Hann heimsótti hana kvöld og morgna
og talaði við hana. Hún segist hafa séð hann vaxa upp í
andaheiminum og sama sé að segja um mörg börn, sem
hún hafi fylgzt með eftir að þau dóu. Bróðir hennar heim-
sækir hana oft enn. Þessar barnasýnir og heyrnir telur
hún hafa verið undirbúning fyrir ævistarf sitt.
Fyrstu stóru sýnina sá hún 7 ára gömul. f það sinn sá
systir hennar, sem eldri var, sömu sýnina og varð svo
mikið um, að það leið yfir hana. Birtist þeim einhvers
konar riddari í eldlegum herklæðum og með glitrandi
kross á brjóstinu. Veru þessa sáu systurnar svífa í loft-
inu. Þegar frú Roberts hélt fyrsta fund sinn í Queens
Hall, birtist henni þessi sama vera fyrir fundinn og sagði
þá við hana: „Að þjóna og aldrei að víkja.“ Skildist frú
Roberts, að þetta ættu að vera kjörorð lífs hennar. En
veruna sá hún ekki oftar.
Þegar Estelle var í kring um 14 ára aldurinn, fór anda-
fólkið að segja henni ýmsa hluti fyrir, veikindi og annað,
sem allt gekk eftir en reyndist þó stundum ekki eins
slæmt og orðin bentu til. Varar hún fólk við að leggja
of mikið upp úr hugboðum og fyrirboðum, því að angist
manns sjálfs geri þetta venjulega verra en það verði í
reyndinni .
Estelle giftist mjög ung og var orðin ekkja með þrjú
börn þrítug að aldri. Hjónabandið hafði verið mjög far-