Morgunn - 01.06.1963, Blaðsíða 68
62
MORGUNN
skal eftir ávöxtunum. Þeir eru guðleysingjar, efnishyggju-
menn, fríhyggjumenn. Jafnvel þeir, sem í orði játa kristna
trú, ganga ekki í guðshús.
Og þeir Evrópumenn, sem koma hingað í nýlendurnar,
hafa misst allt samband við kristindóminn. Þeir líta á
trúna sem hressingu fyrir ríka og huggun fyrir fátæka.
Hinsvegar eru Afríkumenn, sem á síðari tímum hafa tekið
trúna, hinir beztu kristnu menn. Með sínum volukristin-
dómi fá hvítu mennirnir Afríkumenn til þess að draga stór-
lega í efa góðan tilgang kristindómsins, einkum nú þegar
þjóðemisstefnan í Afríku er orðin að kröftugu báli“.
Stjórnmálamaðurinn C svaraði: „Kynflokkaaðgreining-
unni er haldið við innan sumra kristinna kirkna. Ljóst
dæmi þess er Hollenzka endurbætta kirkjan í suðurafríska
lýðveldinu. Þar er jafnvel predikað, að kynþáttaaðgreining
sé í himnaríki! 1 sumum öðrum kirkjudeildum verður þetta
fyrir oss í annarri mynd. Þar er það ýmist svo, að þeldökk-
ir menn og hvítir hafa hvorir sína ákveðnu stóla í kirkj-
unum, eða hvorir sín kirkjuhús algerlega út af fyrir sig. í
enn öðrum kirkjum skipa trúboðarnir hvítum mönnum í
góða stóla en hinum þeldökku til sætis á gólfinu, sem tíð-
um er mjög óhreint. Þarf maður að vera doktor í guðfræði
til þess að sjá, að þessi aðgreining í kirkjunum gengur í
berhögg við fyrirskipun Drottins vors: „Þú skalt elska
náunga þinn eins og sjálfan þig“?
Stjórnmálamaðurinn D. svaraði: „Djöfullinn er mynd-
aður svartur. Afríkumenn eru svartir. Liggur ekki beint
við að draga af þessu þá ályktun, að Afríkumenn séu djöfl-
ar. 1 sumum kirkjum er enska orðið „dýrlingur“ þýtt með
afrísku orði, sem beinlínis þýðir „hvítur maður eða kona“,
og þannig er til þess ætlazt að Afríkumenn ákalli „hvítu
mennina“ í himnaríki. Þetta er helgispjöll. Myndir dýr-
linganna eru málaðar hvítar í stað þess að mála þá svarta,
þegar myndirnar eru ætlaðar þeldökkum mönnum.