19. júní - 19.06.1998, Qupperneq 30
Jafnrétti snýst
um samvinnu
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir
fjölmiðlafræðingur tók við formennsku í
Kvenréttindafélagi Islands í vor. Áslaug
hefur fengist við ýmislegt í gegnum
tíðina og verið áberandi í útvarpi og
sjónvarpi. I spjalli við Hrafnhildi
Halldórsdóttur kemur fram að Áslaug er
sannkölluð sveitastúlka sem ólst upp
hjá afa sínum og ömmu í
Biskupstungunum.
Áslaug Dóra með son sinn, Jón Nordal, eins og hálfs árs gam/an.
r
slaug Dóra Eyjólfsdóttir er fædd á
köldum febrúardegi árið 1965 á
Fæðingarheimilinu í Reykjavík. Móð-
ir Áslaugar, Sigurþóra Stefánsdóttir, var að-
eins 16 ára þegar Áslaug fæddist og
skömmu eftir að Áslaug kom í heiminn fluttu
þær mæðgur í sveitina til foreldra Sigurþóru,
hjónanna Áslaugar Ólafsdóttur frá Fossá í
Kjós og Stefáns Árnasonar sem fæddur var
og uppalinn á Skólavörðustíg í Reykjavík. Þau
bjuggu þá á Syðri-Reykjum II í Biskupstung-
um.
„Móðir mín dvaldi fyrst um sinn þarna
með mér en ákvað svo að drífa sig í hús-
mæðraskóla og það varð úr að ég yrði eftir
hjá afa og ömmu," segir Áslaug. Hún segir
að það hafi verið yndislegt að alast upp í
sveitasælunni. Á Syðri-Reykjum II var um
tíma rekin stærsta garðyrkjustöð landsins og
á tímabili voru u.þ.b. 30 manns í vinnu á
garðyrkjustöðinni. „Afi og amma kynntust í
Reykjavík en ákváðu síðan að söðla um, flytja
í sveit og hefja garðyrkjubúskap, sem segir
sína sögu um þessi hjón," segir Áslaug.
„Þegar ég var að alast upp höfðu þau enn
söðlað um, afi minn lærði keramikgerð í Dan-
mörku og þau starfræktu litla verksmiðju á
Syðri-Reykjum þar sem brenndir voru plattar
og krúsir."
Hún segist alltaf hafa kallað þau pabba og
mömmu, sennilega vegna þess að henni
fannst ekkert eðlilegra. „Þau voru líka svo
ung í anda," bætir Áslaug við og segir að
umræðurnar við eldhúsborðið hafi oft verið
mjög líflegar. „Amma mín, sem varfædd ár-
ið 1909, ólst upp við kröpp kjör og hafði
enga möguleika til að mennta sig þannig að
hún lagði mikla áherslu á að ég myndi
ganga menntaveginn, eins og hún gerði við
allar dætur sínar. Henni fannst það afar mik-
ilvægt að ég hefði góða vinnu og væri sjálf-
stæð, en eina leiðin til þess væri að afla sér
góðrar menntunar. Amma mín var einstak-
lega vel gefin og vel gerð kona og eins og
svo margar konur af þessari kynslóð þá
ruddi hún brautina fyrir okkur og það finnst
mér við seint geta fullþakkað.
Ein af „Tungnafrekjunum"
Áslaug fór í Reykholtsskóla í Biskupstungum
en lauk 9. bekk í Skálholtsskóla. „Við stelp-
urnar vorum alltaf mjög atkvæðamiklar og
gjörsamlega kúguðum strákana í bekknum.
Við ræddum mikið um jafnréttismál og lás-
um heilmikið um þau efni. Á þessum tíma
voru að koma út bækur eins og Kvennakló-
settið eftir Marilyn French, Praxis eftir Fay
Weldon, Kvennalistinn kom fram á sjónar-
sviðið og Vigdís var kosin forseti svo þessi
umræða brann á okkur. Síðan lá leiðin í
Menntaskólann að Laugarvatni og við, þessi
stelpnahópur, vorum kallaðar „Tungnafrekj-
urnar". Við höldum enn sambandi og hlæj-
um oft þegar við rifjum upp skólaárin. Það
var alltaf svo mikið að gera og ég tel að dvöl
í heimavistarskóla kenni manni ákveðið sjálf-
stæði. Engínn sagði manni að fara að læra
heldur varð maður sjálfur að passa upp á
alla hluti. Svo þarf að sýna ákveðið umburð-
arlyndi því lífið í heimavistarskóla er eins og
að vera hluti af stórri fjölskyldu."
Lærði að lifa á engu
Eftir stúdentspróf flutti Áslaug til Reykjavíkur
og hóf nám í Háskóla Islands. „Þá var komið
að því tímabili að leigja og eiga aldrei aur,"
segir Áslaug. Hún lauk BA-prófi í ensku,
bókmenntafræði og listasögu. Eftir háskóla-
námið fékkst Áslaug við ýmislegt, m.a. var
hún flugfreyja um tíma, einn vetur fór hún í
bakpokaferðalag um Evrópu, Egyptaland og
(srael. „Þar lærði ég að lifa á engu," segir
Áslaug og hlær. „Ég held að í dag gæti
maður varla staðið í svona ferðalagi án allra
þæginda."
Áslaug var um tíma blaðamaður á Dag-
blaðinu, síðan lá leiðin í Ríkisútvarpið þar
sem hún starfaði við þáttagerð fyrir útvarp
og sjónvarp, m.a. á dægurmálaútvarpi og
morgunútvarpi Rásar 2. Ég ákvað síðan að
drífa mig í hagnýta fjölmiðlun í Háskóla ís-
lands og tók það nám með vinnu svo það
var mikið að gera um tíma. Eftir það fór ég
ásamt manninum mínum, Sigurði Nordal, til
30