19. júní - 19.06.1998, Qupperneq 40
Fyrsti íslenski kvendoktorinn
Þrátt fyrir að vera fyrsti íslenski
kvendoktorinn og fyrsti Norður-
landabúinn til að Ijúka doktors-
prófi frá Sorbonne-háskóla er
nafn Bjargar Caritasar Þorláks-
dóttur ekki feitletrað í sögubók-
um samtímans. Björg galt þess
að vera kona í karlaveldi eins og
kemur fram í grein Kristínar
Þóru Harðardóttur að neðan.
í
Að ári kemur út afrakstur lang-
tímarannsóknar dr. Sigríðar
Dúnu Kristmundsdóttur á
Björgu, ævi hennar og verkum.
Björg ásamt Sig-
fúsi Blöndal, eig-
inmanni sínum,
áður en vinnan við
Blöndals orðabók-
ina hófst.
En það mun verða í sögur fært, þó síð-
ar verðí, að fyrsti íslendingurinn sem
hefur „dispúterað" þar hafi verið
kona.1)
Þannig endar Ágúst H. Bjarnason ritdóm
í Morgunblaðinu árið 1926. Konan sem
Ágúst vísar til er Björg Caritas Þorláksdóttir
og afrek hennar var doktorsvörn við Sor-
bonne-háskóla árið 1926. Hún var raunar
ekki aðeins fyrst (slendinga til að "dispútera"
frá þeim virta skóla heldureinnig fyrsti Norð-
urlandabúinn sem þar lauk doktorsprófi.
Við skulum vona að sá tími komi að sagð-
ar verði sögur af Björgu Caritas Þorláksdótt-
ur sem um síðustu aldamót lagði land undir
fót og hélt til Kaupmannahafnar í því skyni
að mennta sig. Það var að vísu ekkert eins-
dæmi að konur færu utan til mennta. Konur
héldu til Kaupmannahafnar í Ijósmóðurnám,
kennaranám og hússtjórnarnám, það er að
segja konur menntuðu sig til starfa sem enn
í dag kallast hefðbundin kvennastörf. Björg
settist hins vegar á skólabekk til að læra
heimspeki.
Ótroðnar slóðir.
Björg var fædd hinn 30. janúar 1874 á Vest-
urhópshólum í Húnavatnssýslu. Uppeldi
hennar virðist hafa verið með hefðbundnum
hætti á þeirra tíma mælikvarða. Björg þótti
snemma skýrleiksstúlka og raunar má segja
að bóknám hafi legið vel við þeim öllum fjór-
um systkinunum frá Vesturhópshólum og öll
voru þau sett til mennta. Sigurbjörg lærði
Ijósmóðurfræði og tók síðar einnig kennara-
próf. Magnús gekk í Flensborgarskóla í Hafn-
arfirði og fór síðar í búnaðarskóla í Noregi.
Jón tók stúdentspróf úr Lærða skólanum og
stundaði verkfræðinám í Kaupmannahöfn.
Jón er tvímælalaust þekktastur af þeim systk-
inum og varð forsætisráðherra og síðar
borgarstjóri í Reykjavík.
Björg stundaði nám í kvennaskólanum á
Ytri-Ey á Skagaströnd 1890-1893 en þar réði
þá ríkjum Elín Briem, annálaður kvenrétt-
indafrömuður og höfundur Kvennafræðar-
ans sem fyrst kom út árið 1889. Elín Briem
var kröfuharður skólastjórnandi og valdi
kennara sína ætíð af mikilli kostgæfni. Björg
hefur greinilega staðið undir þeim kröfum
sem Elín gerði því hún varð kennari við skól-
ann að loknu námi þar, frá 1894-1897. En
hugur Bjargar stefndi hærra og með aðstoð
bróður síns Jóns Þorlákssonar undirbjó hún
sig fyrir frekara nám og hélt til Danmerkur
með honum 1897. ( Kaupmannahöfn tók
Björg stúdentspróf 1901 og síðan próf í
heimspeki frá Hafnarháskóla 1902.
40