19. júní - 19.06.1998, Blaðsíða 42
I
hafi ekki þann eina tilgang að koma í veg fyrir
getnað heldur stuðli þær að því að konur geti
haft meiri ánægju af kynlífinu þar sem óttinn við
getnað vofi ekki sífellt yfir þeim.
Auk þess sem upp er talið hér skrifaði Björg
greinar um samúðina, um kenningar Sigmunds
Freud, um dauðann, um samþróun líkama og sál-
ar o.fl. Bækur hennar og þýðingar fjalla m.a. um
mataræði og þjóðþrif, um svefn og drauma, um
menntamál kvenna o.fl. Auk þess skrifaði hún
leikrit og Ijóð og þýddi erlend skáldverk.
Þó svo að Ijóðabók hennar hafi sennilega ekki
mikið bókmenntalegt gildi og teljist ekki til stór-
virkis á því sviðinu þá eru Ijóð hennar e.t.v. besta
heimildin um líf hennar og þær tilfinningar sem
hún bar í brjósti. ( þekktasta Ijóði sínu fjallar hún
um þá hlekki sem af henni hrundu þegar vinn-
unni við orðabókina lauk. Þessari umfjöllun um
merka konu lýkur með hennar eigin orðum:
Orðabókinni miklu lokið,
Eftir 20 ára starf.7>
Ó, fjötrarnir hrundir, sem ár eftir ár
í álögum sálu mína bundu!
Og læstu í huga mér frostnótta fár,
sem felldi hrím á unga gróðrarlundu.
Ó, þrautirnar unnar, sem Skapanorn mér skóp, er
skráfesti' hún urðarrúnir mínar!
þó orðabókin þegi um anda míns óp,
um aldir þögul ber hún minjar sínar.
Und ösku varfalinn minn fjörneisti klár
og felhellu, er andans glóðir svæfði.
Og tíminn og gleymskan að verki voru um ár.—
— Eg vissi ei lengur, hvort frelsið mér hæfði.
En andi minn fellir nú álöguhjúp. —
Og andræn glóð um hug og sálu streymir.
Sem vorblær úr dái æ vekur moldarhjúp,
svo vaknar neisti, er biðlíf sálar geymir.
Sem vorsól úr hrími fær vakið daggtár nótt,
svo vermir hug og frjóvgar neisti hulinn.
— Hann lífglóðum örþyrstum anda vekur þrótt,
unz aftur lifnar gróður sálar dulinn.
Tilvitnanir.
1) Morgunblaðið 20. júní 1926.
2) Sigfús Blöndal: íslensk-dönsk orðabók. Rvk. 1920-
1924, formáli bls.VII-XIII.
3) Björg Einarsdóttir: Úr ævi og störfum íslenskra
kvenna. Rvk. 1984, bls. 187.
4) Björg C. Þorlákson: Ljóðmæli. Rvk.1934, bls. 97.
5) Morgunblaðið 23. mars 1934.
6) Skírnir 81. árg. 1907.
7) Björg C. Þorlákson: Ljóðmæli. Rvk. 1934, bls. 48.
Rökkurljóð
á skálmöld
Hlýddu á sögu mína
meðan nóttin líður
meðan óttinn ríður
gandreið heim á hlað.
Meðan úti í löndum
drýpur blóð af bröndum.
Svört eru spor á söndum
og sumra hjörtu köld.
Hlýddu á sögu mína
hún er um óskir þínar
hún er um blómið hvíta
og heimana sjö.
Lygin er eins og flagðið með höfuðin tvö.
Blóð er í sporum kynslóðanna
og böl á hvers manns leið.
Hverjir vilja efla þann harmanna seið?
Hlýddu á sögu mína.
Sólir margar skína
á bak við þokubakka
og blóðlitaða klakka.
En geislarnir týnast
því leiðin er svo löng.
Geislarnir týnast
í gilin myrk og þröng.
Reyndu að finna einn og einn
og fela í hjartastað.
Eflaust launar sólin þér
sjálf fyrir það
ef hýsirðu ljósið
í hjarta þíns stað.
Steinunn Eyjólfsdóttir
42