19. júní - 19.06.1998, Blaðsíða 45
um málum og jafnvel hillir undir kynslóð karla
sem tilbúin er til að víkja og losa sæti fyrir
konum úti í samfélaginu af því að þeir hafa
áttað sig á því að það er líka þeirra eigin
hagur að fá að njóta tíma með fjölskyldunni
og sinna heimilinu til jafns við konur.
Fjölskyldustefna fyrirtækja
Vissulega gætu forsvarsmenn fyrirtækja
stuðlað að fjölskylduvænna andrúmslofti
með því að sýna jákvætt viðhorf. Til dæmis
með því að draga úr yfirvinnu og bjóða upp
á sveigjanlegan vinnutíma. Samt ekki þannig
að fólk taki vinnuna með sér heim og lengi
þar með vinnutímann eins og raunin er í dag
í formi endurmenntunarnámskeiða, líkams-
ræktar og fitubrennslunámskeiða sem gera
starfsmanninn hæfari að mati umhverfisins.
Draga mætti úr makalausum veisluhöldum
og bjóða í staðinn til fjölskyldufagnaða.
Hjá sumum fyrirtækjum er krafist yfirvinnu
og sá sem ekki getur unnið um helgar getur
leitað sér að annarri vinnu. Þá er spurning
hvernig stéttarfélög standa við bakið á sínum
félagsmönnum.
Stjórnmál
Stjórnmálaflokkarnir hafa allir fjölskyldu-
stefnu á stefnuskrá sinni. Þar ber mest á
lengdu fæðingarorlofi og jöfnum rétti
mæðra og feðra til töku þess, sveigjanleg-
um vinnutíma auk aðgerða í húsnæðismál-
um og auknum sjálfstæðum rétti feðra. For-
eldrar eiga að njóta fullra launa og sveigjan-
leika við töku fæðingarorlofs og auka skal
rétt þeirra til að vera heima yfir veikum börn-
um og veita foreldrum langveikra barna sér-
stakan stuðning. Foreldrar eiga að geta not-
að ónýttan persónuafslátt barna sinna yngri
en 18 ára og lækka skal jaðarskatta hjá lág-
tekjufólki. Stjórnmálamenn vilja stuðla að
jafnrétti og jafna tækifæri kvenna og karla.
Stjórnmálamenn viðurkenna að miklar og
hraðar breytingar á þjóðfélagsháttum og
lífsstíl hafa aukið álag á fjölskylduna og vilja
styrkja stöðu hennar með öflugu forvarnar-
starfi. Stytta skal vinnutíma. Öll börn fái
barnakort við fæðingu sem veiti 30 þúsund
kr. skattaafslátt á ári. Frítekjumark þarnabóta
verði hækkað. Persónuafsláttur hjóna og
sambýlisfólks verði millifæranlegur að fullu.
Einnig er í stefnuskrám getið sálfræðiþjón-
ustu sem tengist skólakerfinu og fjölga á úr-
ræðum í baráttunni gegn vímuefnavandan-
um.
Jafnrétti
íslenskir stjórnendur taki í auknum mæli tillit
til nýrra lífshátta og þarfa fjölskyldunnar.
Með feðraorlofi, kynhlutlausu starfsmati,
framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum og
átaki til að vinna að aukinni þátttöku kvenna í
stjórnmálum skal unnið að því að tryggja
raunverulegt jafnrétti karla og kvenna.
Víst er að allar þessar breytingar yrðu
kostnaðarsamar en þær eru þess virði og
myndu skila sér í bættum frumtengslum milli
foreldra og barna. Svo sannarlega er kominn
tími til að við eflum vináttuna við börnin okk-
ar. Byggjum upp traust samband og kærleika
við börnin á meðan þau eru á unga aldri. Það
er ekki endilega spurning um hversu langur
tíminn er heldur hvernig honum er varið. Til
dæmis stutt stund eða saga sögð fyrir svefn-
inn getur skapað grundvöll til trúnaðarsamtals
sem er bæði foreldrum og barni ákaflega mik-
ilvægt.
Er það von mín að þróun í fjölskyldumálum
þjóðarinnar verði hröð og jákvæð. Margt gott
hefur verið gert, en betur má ef duga skal.
Gegnum glerþakið
Valdahandbók fyrir konur-
er stútfull af heilræðum,
reynslusögum og fróðleik
frá norrænum stjórnmála-
konum.
Verð 1.500 kr.
til félagsmanna 1.000 kr.
Fæst á skrifstofu Kvenréttindafélagsins og í flestum bókaverslunum.
45