19. júní - 19.06.1998, Blaðsíða 59
Upp með
hlaupaskóna !
Eldri og yngri — af öllum stærðum og
gerðum — reimuðu yfir 2.000 konur á
sig hlaupaskóna og hlupu fyrsta
Kvennahlaup ÍSÍ frá Vífilsstaðatúni í Garðabæ
hinn 19. júní árið 1990. Ekki var fjöldinn þar
með allur upp talinn því að um 500 konur
hlupu undir merkjum hlaupsins frá 7 öðrum
rásmörkum víðs vegar um landið þennan
r-w i ’ M ÍJ* '
í l"t0,’XýÍ ' «L K k - Æ& jmjkaiJf ■ ( "" flra m |
sama dag. Kvennahlaupið var greinilega
komið til að vera og hefur verið hlaupið einu
sinni á ári allar götur síðan. Ekki hefur heldur
verið hægt að kvarta yfir áhuganum og hefur
fjöldi hlaupara og rásmarka farið vaxandi
með árunum. Til dæmis hlupu 23.000 konur
frá 82 rásmörkum út um landið allt og í
útlöndum Kvennahlaupið á síðasta ári.
Stærsta Kvennahlaupið hefur farið fram í
Garðabæ og hefur fjöldinn í því hlaupi farið
upp í um 7.600 konur. Annað hlaup á Stór-
Reykjavíkursvæðinu er í Mosfellsbæ. Úti á
landsbyggðinni undirbúa valkyrjur (slands
hlaupið í sínu byggðarlagi. Án þeirra væri
jafn öflugt Kvennahlaup ekki mögulegt.
Markmið Kvennahlaupsins er að hvetja konur
til þátttöku í íþróttum og er ekki óalgeng
sjón að sjá nokkra ættliði hlaupa saman. (
Kvennahlaupinu er engin tímataka og lögð
er áhersla á að hver kona komi í mark á
sínum hraða með bros á vör. Ekkert er því til
fyrirstöðu að konur taki upp hlaupaskóna og
veri með í tíunda Kvennahlaupinu hinn 19.
júní 1999.
Helga Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri
Kvennahlaups ÍSÍ.
Ártöl og
áfarigar í
sögu íslenskra
kveriria
I ritinu er sagt frá konum sem rutt hafa brautina á ýmsum
sviðum þjóðlífsins. Fjallaö er um samtök kvenna, íþróttir, listir
og menningu, blöð og tímarit kvenna, auk merkra atburða í
sögu kvenna.
Bókin er heimilda- og uppflettirit sem nýtist öllum þeim sem
vilja fræðast um áfanga í sögu kvenna á íslandi. Bókin er i
kilju og er 210 blaðsíöur.
Artöl og áfangar i sögu íslenskra kvenna er til sölu i helstu
bókabúðum og i Þjóðarbókhlöðu þar sem hún fæst á kr. 2000.
Kvennasögusafn lslands
(5ullkistan
Sérverslun
með kvensilfur
Bjóðum eldri munsturgerðir
Onnumst allar
viðgerðir, hreinsun
og gyllingar.
Allar upplýsingar
um hefð og gerðir
búninga eru
veittar á staðnum.
(OuUktstan
Frakkastíg 10 - Sími:55l 3160
59