19. júní - 19.06.1998, Side 69
Menntasmiðju kvenna, Akureyri, Hefur
starfsfólk fyrirtækja jafnan aðgang að sí-
menntun? Randver Fleckenstein, Forskot,
stjórnunar- og rekstrarráðgjöf.
1 pallborðsumræðunum tóku þátt:
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, Ögmundur
Jónasson, formaður BSRB, Björk Vilhelms-
dóttir, formaður BHM, Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSÍ, Ásta Möller, for-
maður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Fundarstjóri var Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir
Kvenréttindafélagið hefur tekið að sér að
sjá um íslenska þátttöku í Vestnorrænni ráð-
stefnu sem haldin verður í Þórshöfn í Færeyj-
um dagana 5. - 8. júní. Á ráðstefnunni munu
(slendingar, Færeyingar og Grænlendingar
fjalla um ofbeldi gegn konum, vinnumarkað-
inn með tilliti til jafnréttis kynjanna, fjöl-
skyldustefnu og þátttöku kvenna í stjórnmál-
um. Hólmfríður Sveinsdóttir hefur verið okk-
ar fulltrúi í undirbúningsnefndinni.
Womens world - Alþjóð-
leg ráðstefna 20. - 26. júní
1999
Norræna ráðherranefndin hefur beðið Kven-
réttindafélagið um að sjá um íslenska þátt-
töku í norrænni sýningu og smiðju á alþjóð-
legri ráðstefnu sem haldin verður í Tromsö
dagana 20. - 26. júní n.k. Rætt hefur verið
um að auglýsa eftir þátttöku þar sem beðið
verður um lýsingu á verkefni eða framlagi
viðkomandi. KRF( muni síðan velja þátttak-
endur úr hópi umsækjenda. Ráðstefnan
verður að öllum líkindum yfirgripsmikil og
fjölmenn. Hún mun þó ekki verða jafn fjöl-
menn og norrænu kvennaþingin sem haldin
hafa verið, enda er gert ráð fyrir virkri þátt-
töku allra sem ráðstefnuna sækja. Sigrún
Edda Jónsdóttir hefur séð um undirbúning
okkar vegna ráðstefnunnar.
Félaginu var boðið að senda fulltrúa sinn
á ráðstefnu Norrænu ráðherranefndarinnar í
Þórshöfn, Færeyjum, 18. - 20. september
1998 og sótti Sigrún Edda Jónsdóttir hana
fyrir félagið. Yfirskrift ráðstefnunnar var
„Smánationer - kön og visioner". Þátttak-
endur voru frá Álandseyjum, Færeyjum,
Grænlandi, Islandi, Danmörku, Finnlandi,
Noregi og Svíþjóð. Dagskrá ráðstefnunnar
var fjölbreytt og komu fyrirlesarar víða að.
Eins og sjá má af yfirskriftinni var viðfangs-
efnið sérstaða lítilla samfélaga hvað varðar
jafnréttismál.
Önnur verkefni félagsins á
árinu
19. júní
Eftir samfellda útgáfu félagsins á blaðinu 19.
júní frá árinu 1951 urðu þau leiðu tíðindi á
síðastliðnu ári að félaginu var ókleift að gefa
blaðið út. Samið hafði verið við Ásdísi Olsen
um að ritstýra blaðinu og valdi hún með sér
ritnefnd. Fulltrúi stjórnar félagsins í ritnefnd-
inni varÁsta R. Jóhannesdóttir. Skömmu fyr-
ir útgáfu blaðsins kom upp ágreiningur á
milli stjórnar annars vegar og ritstjóra og rit-
nefndar hins vegar um skoðanakönnun sem
ritstjóri og ritnefnd stóðu fyrir og til stóð að
vinna úr í blaðinu. Því miðurtókust ekki sætt-
ir og því fór sem fór. Tímaskortur kom í veg
fyrir að hægt væri að ráða nýjan ritstjóra og
ritnefnd til að vinna blaðið. Það var því sam-
dóma álit stjórnar félagsins að gefa útgáfu
blaðsins upp á bátinn þetta sinnið.
Fréttabréfíð
Félagið gaf út fjögur fréttabréf á árinu og var
fréttabréfið enn sem fyrr vettvangur skoð-
anaskipta og upplýsinga. Þarvareinnig starf-
semi félagsins kynnt og störf nefnda og
stjórna sem félagið á aðild að fékk þar jafn-
framt kynningu. Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir
hefur séð um fréttabréfið ásamt Sigrúnu
Eddu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra félags-
ins.
Gegnum glerþakið
Félagið gaf út bókina Gegnum glerþakið -
Valdahandbók fyrir konur og hélt af því til-
efni blaðamannafund og útgáfuteiti 3. mars
sl. Gegnum glerþakið - Valdahandbók fyrir
konur er full af heilræðum, reynslusögum og
fróðleik frá norrænum stjórnmálakonum.
Bókin er að uppistöðu þýðing á Krossa
glastaket - Makthandbok för kvinnor, sem
kom út í Svíþjóð á liðnu ári og vakti þar verð-
skuldaða athygli. Höfundarnir, sem eru
sænskar blaðakonur, komu hingað til lands á
liðnu ári til að ræða við Vigdísi Finnboga-
dóttur og íslenskar stjórnmálakonur. Úr við-
tölunum unnu þær íslenska viðbót við bók
sína og fléttuðu hana inn í textann. Björg
Árnadóttir þýddi bókina úr sænsku.
Gegnum glerþakið - Valdahandbók fyrir
konur er enn eitt framlag félagsins til barátt-
unnar fyrir þátttöku íslenskra kvenna í stjórn-
málum. KRFf vill með útgáfu bókarinnar örva
umræðuna um aðstæður kvenna í stjórnmál-
um og vonast til að hún geti styrkt íslenskar
stjórnmálakonur til nýrra átaka og sigra. Þá
er þess vænst að reynsla kvennanna, sem í
bókinni segja sína sögu, megi vísa þeim kon-
um veginn sem eru að stíga sín fyrstu skref í
stjórnmálum.
Bókin hefur fengið góðar viðtökur og
eygjum við ágæta sölu sem ekki er vanþörf á
fyrir fjárlítið félagið. Bókin var styrkt af ýms-
um aðilum og hefur þegar með styrkjunum
fengist fyrir kostnaði vegna þýðingar og
prentunar hennar.
Ráðherraskipuð nefnd til að auka
hlut kvenna í stjórnmálum
Félagsmálaráðherra skipaði á síðastliðnu
hausti nefnd sem falið var að skipuleggja
þverpólitískar aðgerðir til að auka hlut
kvenna í stjórnmálum. KRF( var boðið að til-
nefna fulltrúa í nefndina og þáði það boð.
Ragnhildur Guðmundsdóttir var tilnefnd af
hálfu félagsins. Nefndin hefur vakið mikla at-
hygli í samfélaginu með aðgerðum sínum og
talið er að hún hafi þegar skilað nokkrum ár-
angri. Staðið var fyrir auglýsingaherferð þar
sem formenn stjórnmálaflokkanna komu
fram á mynd við kynbundna iðju hins kynsins.
Þá hefur nefndin staðið fyrir auglýsingum í
sjónvarpi þar sem konur eru hvattar til að
velja sinn fulltrúa í prófkjörum. Nefndin hefur
haldið fundi víða um land til að kynna verk-
efni sitt og hvetja til aukinnar þátttöku
kvenna í stjórnmálum. Auk KRFÍ eiga þing-
flokkar á Alþingi fulltrúa í nefndinni.
NIKK
Kvenréttindafélagið vinnur áfram að gerð
gagnagrunnar um kvennahreyfinguna á (s-
landi fyrir NIKK (Nordisk institutt för kvinne-
och könnsforskning) og tekur þannig þátt í
að byggja upp net kvennahreyfinga á öllum
Norðurlöndunum. Norræna ráðherranefndin
styrkir verkefnið. Hún greiðir þann kostnað
sem fellurtil sameiginlega hjá öllum löndun-
um, en gert er ráð fyrir að þátttökuaðilar
greiði þann kostnað sem hlýst af verkefninu í
hverju landi. Því miður hefur enn ekki tekist
að fá styrk til þessa verkefnis KRFl en von-
andi rætist þar úr. Kristín Einarsdóttir hefur
séð um aðild okkar að þessu starfi.
Nefndir og stjórnir sem Kvenrétt-
indafélagið á fulltrúa í
Félagið á fulltrúa í ýmsum nefndum, stjórn-
um og ráðum. Ég mun ekki í þessari skýrslu
minni gera grein fyrir því mikilvæga starfi
sem þar er unnið en bendi á að á fundinum
liggja frammi skýrslur frá fulltrúum okkar.
Hallveigarstaðir
Kvenréttindafélagið hefur haft umsjón með
Hallveigarstöðum síðastliðin tæp tvö ár. Sig-
rún Edda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, er einnig framkvæmdastjóri hússins í
hálfu starfi. Nokkuð annasamt hefur verið í
starfi hennar fyrir húsið eins og sjá má í
skýrslu hennar sem hér liggur frammi. Þar
kemur einnig fram að fjárhagsstaða hússins
er slæm. Arðgreiðslur til félaganna hafa leg-
ið niðri um nokkurn tíma og mikil vinna hefur
farið í að fá leigjendur að húseigninni. Það er
af sem áður var að einn stór leigjandi,
menntamálaráðuneytið, leigði mestallt hús-
næðið með öllu því sem þar er, göngum og
geymslum. Sigrún leggur til í skýrslu sinni að
félögin selji húsið. Hún tekur þannig undir
margra ára tillögu stjórnar félagsins en eins
og kunnugt er hafa hinir eigendurnir ekki
verið eins áfjáðir í að selja. Nú brá þó svo við
að fulltrúi Bandalags kvenna í Reykjavík í hús-
nefnd bar upp tillögu á síðasta fundi nefnd-
arinnar um að kannað yrði hvað fengist fyrir
húsið í sölu. Svo er að sjá hvað gerist. Seljist
húsið er fjárhagsleg framtíð félagsins tryggð.
Fjárhagsstaðan
Fjárhagsstaða félagsins hefur lengi verið erf-
ið enda eru bein framlög til félagsins einung-
is 500 þús. kr. árlega á fjárlögum og á fyrrum
formaður félagsins, Bryndís Hlöðversdóttir,
ásamt öðrum ágætum þingkonum umfram
aðra heiðurinn af því að hafa komið félaginu
aftur inn á fjárlög. Félagsgjöld heimtast því
69