Frjáls verslun - 01.04.2003, Blaðsíða 19
BANKAMÁL í BRENNIDEPLI
ÚTLAW
34,1% - íslandsbanki
28,4% - Landsbankinn
Sameinaður Landsbanki - íslandsbanki
hefði 62,5% útlána bankanna.
Sameinaður banki Landsbanka og íslands-
banka hefði 62,5% af útlánum bankanna
þriggja. (1. ársfj.)
INNLÁN
23,2% - íslandsbanki
31,3% - Landsbankinn
Sameinaður Landsbanki - íslandsbanki
hefði 54,7% innlána bankanna.
Sameinaður banki Landsbanka og íslands-
banka hefði 54,7% af innlánum bankanna
þriggja. (1. ársfj.)
GJALDEYRISIf IÐSKIPTI
Hlutfall miðað við krónur til þriðja aðila
Á þessu myndi sameining Landsbanka og
Islandsbanka fyrst og fremst stranda; yfir-
burðum hans í gjaldeyrisviðskiptum (þ.e. tii
þriðja aðila). Hann hefði yfir 70% markaðs-
hlutdeild. (1. ársfj.)
Búnaðarbanka að hinn nýi sameinaði banki keppi við tvo
mjög öfluga banka og komi samruninn því ekki niður á sam-
keppni í bankaheiminum. Kaupþing er fjárfestingabanki en
Búnaðarbankinn viðskiptabanki. Það að samkeppnisráð sjái
ástæðu til að taka fram í úrskurði sínum hvað Islandsbanki og
Landsbanki séu stórir og öflugir túlka flestir á þá leið að ráðið
sé að gefa tóninn um það hvernig úrskurður þess liti út.
Innan viðskiptalífsins benda ýmsir á að þótt samkeppnisráð
hafi stöðvað sameiningu Landsbankans og Búnaðarbankans
fyrir rúmum þremur árum, í árslok 2000, með þvi að skilgreina
innlána- og útlánamarkaðinn mjög þröngt, séu aðstæður allt
aðrar núna. Svo langt var samrunaferli Lands- og Búnaðar-
banka komið að Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður var búinn
að semja sameiningarlag fyrir hinn nýja banka, að beiðni
Valgerðar Sverrisdóttur viðskiptaráðherra. En samkeppnisráð
sló Valgeir, Valgerði og aðra út af laginu og hafnaði sameining-
unni. Ríkisstjórnin átti möguleika á að láta reyna frekar á málið
fyrir dómstólum en gerði það ekki.
Hve þröngt á að skílgreina markaðinn? Menn benda á að
þær breyttu forsendur, sem núna blasa við á íslenska banka-
markaðnum, snúist um
eðli markaðarins. Hann
sé orðinn alþjóðlegri og
því sé erfitt að skilgreina
inn- og útlán bankanna
jafn þröngt og ráðið gerði
fyrir rúmurn þremur
árum þegar það hafnaði
sameiningu Búnaðar-
banka og Landsbanka.
Þess utan hafi form inn-
og útlána gjörbreyst og
vægi bankanna á pen-
ingamarkaðnum hafi
sömuleiðis minnkað.
Form sparnaðar landsmanna hefur t.d. gjörbreyst.
Sparnaðurinn snýst ekki lengur um einhvern Jón Jónsson
sem er með bankabók, tékkareikning, yfirdrátt og krítarkort
í banka. Fjöldinn sparar núna í verðbréfum (t.d. hluta-
bréfum), alls kyns verðbréfasjóðum, og ekki síst í gegnum
lifeyrissjóðina. Þess vegna er því haldið fram að gamla skil-
greiningin á hugtakinu innlán í þjóðfélaginu sé orðin úrelt.
Skuldír heimilanna Útlán bankanna til almennings hafa
breyst á örfáum árum. Aður fór fólk í banka til að fá lán fyrir
bíl, utanlandsferð og hluta af íbúðakaupum sínum. Sé horft á
skuldir heimilanna - lán til einstaklinga - sést að sístækkandi
hluti af heildarskuldum einstaklinga er hjá Ibúðalánasjóði og
lífeyrissjóðum sem hafa hækkað viðmiðunarmörk sín og
aukið lán til einstaklinga á kostnað bankanna. Þá veita eigna-
leigur og tryggingafélög fólki lán í auknum mæli vegna bíla-
kaupa. Með öðrum orðum; einstaklingar eiga meira val þó að
seint fari þeir til útlanda með hefðbundin bankaviðskipti sín.
I ljósi þessa finnst mörgum það skammsýni ef samkeppnisráð
ætlar að skilgreina skammtímaútlán bankanna sem allan
útlánamarkaðinn.
NY KYNSLOÐ BANKASTJORA...
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Bjarni Ármannsson, forstjóri íslands-
Kaupþings-Búnaðarbanka, 32 ára. Landsbankans, 37 ára. banka, 35 ára.
19