Frjáls verslun - 01.04.2003, Qupperneq 26
BANKAMÁL í BRENNIDEPLI
SKIPURIT
LANDSBANKANS
HLUTVERK
26-MENN-
INGANNA
rátt fyrir innkomu 26-menninganna úr Búnaðar-
bankanum í Landsbankann gerir nánast enginn
ráð fyrir því að gripið verði til hópuppsagna þar á
næstunni til að hreinsa út fyrir hið nýja fólk. Um hreina
viðbót er því að ræða.
Hins vegar mun sú taktík örugglega verða notuð
framvegis að fara sér hægt í mannaráðningum og ráða
ekki neina í staðinn fyrir þá sem segja upp af sjálfs-
dáðum. Starfsmannavelta í þönkum er frekar mikil og
því ætti að skolast hægt og sígandi út með þessari
aðferð.
Hlutverk 26-menninganna er einfaldlega að styrkja
bankann á þeim sviðum sem nýir eigendur telja að hann
hefði getað gert mun betur; eins og á sviði verðbréfavið-
skipta, tölvu- og upplýsingatækni og útlána til fyrir-
tækja. Tilgangurinn er auðvitað að stækka bankann
með auknum hraða, bættri þjónustu og þættum
kjörum. Löng hefð er hins vegar fyrir því að viðskipta-
vinir banka hlaupa ekki frá einum banka samdægurs og
elta starfsmenn þeirra.
Fyrir nokkrum vikum voru 20 þekktir starfsmenn í
stjórnunarstöðum við Landsþankann látnir hætta. Á
meðal þeirra sem hættu voru framkvæmdastjórarnir
Björn Líndal og Sigurður Atli Jónsson. Þriðji fram-
kvæmdastjórinn hætti sl. haust, Gunnar Andersen. Núna
bætast við þrir framkvæmdastjórar og einn þankastjóri
um leið og bankinn er endurskipulagður frá grunni.
Mikið mun mseða á Sigurjóni Samkvæmt nýju skipu-
riti Landsbankans fer ekki á milli mála að talsvert mun
mæða á Sigurjóni Þ. Árnasyni, nýjum bankastjóra.
Honum er ætlað að bæta allt innra skipulag bankans, líkt
og hann gerði í Búnaðarbankanum sem framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs. Gott orð fór af honum þar og mun
hann hafa lagt áherslu á að fjárfesta í góðu fólki og góðu
upplýsingakerfi (rekstrar- og stjórnunarupplýsingum,
sjálfvirkni, heimabanka, Interneti o.s.frv.) til að skapa
nýjar tekjur og verkefni. Það hefur t.d. verið orðað
þannig að hann hafi verið duglegri við að eyða peningum
til að afla nýrra tekna með nýjungum í þjónustu í stað
þess að einblína á það að skera niður rekstrarkostnað.
Að því gefnu að 26-menningarnir kosti bankann um 200
til 220 milljónir í auknum launakostnaði á ári liggur fyrir
að þeir verða að auka verðmæti þankans um þá tölu á
ári til að ráðning þeirra standist. B5
Landsbankinn tilkynnti 23. april sl. Kauphöll íslands nýtt
skipurit sitt. Þar kemur fram að Halldór Jón Kristjánsson
bankastjóri mun verða yfir alþjóðasviði, viðskiptaþanka-
sviði og eignasfyringarsviði. Undir hinn nýja bankastjóra, Sig-
uijón Þ. Árnason, heyrir fyrirtækjasvið, verðbréfasvið og öll
stoðsvið. Af þessu ráða menn að mjög muni mæða á honum
við endurskipulagningu bankans á næstu mánuðum. 35
Framkvæmdastjórar eru þessir:
Brynjólfur Helgason, alþjóðasvið CBÍ),
flrsæll Hafsteinsson, lögfræðisvið og útlánaeftirlit CBÍ),
Elín Sigfúsdóttir, fyrirtækjasvið (BÍ),
Haukur Pór Haraldsson, rekstrarsvið (LÍ),
Kristín Rafnar, viðskiptabankasvið (LÍ),
Sigurjón G. Geirsson, upplýsingasvið (LÍ),
Stefán H. Stefánsson, eignastýring (LÍ)
Yngvi Örn Kristinsson, verðbréfasvið (BÍ).
SKIPURIT
KAUPÞINGS-
BÚNAÐARBANKA
Skipurit Kaupþings Búnaðarbanka hf. hefur verið tilkynnt.
Starfandi stjórnarformaður er Sigurður Einarsson (K).
Forsþórar eru Hreiðar Már Sigurðsson (K) og Sólon R
Sigurðsson (BÍ). Fyrsti starfsdagur er áætlaður 27. maí, eftir
hluthafafund beggja félaganna. Um tuttugu yfirmenn verða í
bankanum og koma tíu frá Kaupþingi og tíu frá Búnaðarbank-
anum. Meginsviðin verða ellefu en stoðsviðin sex. 35
Framkvæmdastjórar meginsviðanna verða þessir:
Guðjón Jóhannesson, innri endurskoðun CBÍ),
Steingrímur Kárason, áhættustýring og útlánaeftirlit (K),
Þórður Pálsson, greiningardeild (K),
Ármann Þorvaldsson, fyrirtækjaráðgjöf (K),
Ingólfur Helgason, markaðsviðskipti (K),
Guðmundur Gíslason, alþjóðasvið (Bf),
Kristín Pétursdóttir, fjárstýring (K),
Karl Þorsteins, fyrirtækjasvið (BÍ),
Friðrik Halldórsson, viðskiptabankasvið (BÍ),
Guðbjörn Maronsson, eignastýring og sérbankaþjónusta (K),
Hafliði Kristjánsson, lífeyris- og tryggingasvið (K).
26