Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2003, Side 36

Frjáls verslun - 01.04.2003, Side 36
Fréttaskýring SH og SÍF Yfirtaka eða sameining? Mönnum ber ekki saman um hvaða ástæður eru fyrir því að ekki náðist saman um sameiningu SH og SÍF. SÍF sakar SH um vilja til yfirtöku en SH segir að byrjað hafi verið á vitlausum enda. Ekki er gott að segja hvað liggur í kortunum en þó er Ijóst að Róbert hefur unnið að því að fá fjárfesta frá Nýja-Sjálandi og Kanada inn í SH. Lítíð fer fyrir áhuga á sameinmgu SH og SÍF enda má búast við að hann sé úti í bili nema eitthvað nýtt gerist og menn taki upp þráðinn. Umræðan um sameiningu útflutningsrisanna í sjávar- útvegi er ekki ný af nálinni. I kjölfarið á falli Sambandsins á sínum tíma var möguleikanum á sameiningu SH og Islenskra sjávarafurða, IS, sem og mögu- leikanum á sameiningu SIF, IS og SH, velt upp með lauslegum útreikningum á samlegðaráhrifum án þess að það færi sérstaklega hátt. A tíunda áratugnum var SH og ÍS breytt í hlutafélag og árið 1998 var unnið að sameiningu SH og ÍS en ekki náðist saman um skiptahlutföll á þeim tíma. Síðar voru hins vegar fyrirtækin SIF og IS sameinuð. Frá 1998 hefur hugmyndin um sameiningu SH og SIF öðru hvoru komið tíl umræðu en það var fyrst eftir ræðu Róberts Guðfinnssonar, stjórnarformanns SH, á aðalfundi SH í fyrravor sem umræðan komst verulega á skrið. SH óskaði þá þréfleiðis eför viðræðum við SÍF en SIF svaraði því til að fyrirtækið hefði ekki áhuga að sinni. Það myndi hafa samband og stofna til viðræðna við SH á eigin forsendum þegar og ef tækifæri gæfist til. Það varð um haustið og í lok nóvember hittust forstjórarnir Gunnar Svavars- son, SH, og Gunnar Örn Kristjánsson, SÍF, og stjórnarfor- mennirnir Róbert Guðfinnsson, SH, og Friðrik Pálsson, SÍF, úti á landi og fóru yfir málið. Fá botn í málið Niðurstaða þessa óformlega fundar var sú að samlegðaráhrif væru nægilega mikil til að halda áfram að skoða sameiningu. Ákvörðun var tekin um að hefja viðræður en strax eftir helgina var send út tilkynning um að viðræður væru ekki í gangi. SÍF menn segja að það hafi verið vegna Róberts Guðfinnssonar - hann hafi skipt um skoðun. Málið var hins vegar komið á rekspöl og stöðugur orðrómur var í gangi í þjóðfélaginu allt sl. haust, ekki síst fyrir tilstuðlan Róberts sem var duglegur að tala fyrir sam- einingu. Þar kom að stjórnendur SIF töldu að orðrómurinn væri farinn að skaða félögin, nauðsynlegt væri að fá botn í málið og þvi voru samningaviðræður teknar upp í byijun ársins. I samn- inganefndinni voru stjórnarformennirnir Friðrik og Róbert og svo Aðalsteinn Ingólfsson, fulltrúi S-hópsins, og Þórður Már Jóhannesson, fulltrúi Straums, fyrir hönd SIF og Rakel Olsen, stjórnarformaður Sigurðar Ágústssonar, Þorsteinn Vilhelms- son, stjórnarformaður Afls, og Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs- son, framkvæmdastjóri UVS, fyrir hönd SH. Samninganefndin hittíst nokkrum sinnum en fljótlega varð ljóst að sameining gæti ekki orðið, til þess þæri of mikið á milli og í byijun mars var lýst yfir að niðurstaða lægi fyrir - sameining yrði ekki að veruleika. Mjög er misjafnt hvaða ástæður menn tilgreina fyrir þessari niðurstöðu og er ýmislegt nefnt - allt eftír því við hvern er talað - td. skiptahlutföll, aðferðafræði, meint yfirtökutilhneiging, áhugaleysi, ágreiningur milli manna og kannski hafði hallar- byltingin í SH á sínum tíma einhver áhrif, allavega virtust fyrir- / Sameining SH og SIF er fyrir bí - í bili ad minnsta kosti. Ahugi manna beinist nú frekar ab hugs- anlegum kaupum Nýsjálendinga og Kanadamanna á hlut í SH. Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur 36
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.